Nú er komið að því. Bestu deild karla í fótbolta hefst í dag með leik Íslandsmeistara Breiðabliks og nýliða Aftureldingar. Hann er eini leikur dagsins í deildinni og verður að sjálfsögðu í beinni.
Japanskappaksturinn í formúlu 1 verður í beinni í nótt en þetta er fjórða keppnin á nýja tímabilinu.
Átta liða úrslit Bónus deildar kvenna í körfubolta halda áfram og í dag fer fram leikur tvö í einvígi Stjörnunnar og Njarðvíkur annars vegar og leikur tvö í einvígi Vals og Þórs frá Akureyri hins vegar. Eftir leikina þá mun Bónus Körfuboltakvöld gera upp leik númer tvö í öllum fjórum einvígum átta liða úrslitanna.
NBA leikur dagsins er viðureign Atlanta Hawks og New York Knicks.
Það verða einnig sýndir tveir leikir úr ensku b-deildinni í fótbolta, einn leikur úr þýsku Bundesligunni í fótbolta, einn leikur úr þýsku b-deildinni í fótbolta, lokadagur Augusta National Women's Amateur golfmótsins, þriðji dagur T-Mobile Match Play golfmósins á LPGA mótaröðinni og leikur úr bandarísku NHL-deildinni í íshokkí.
Það verður einnig sýnt frá keppni í tölti í Áhugamannadeild Norðurlands.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.
Stöð 2 Sport
Klukkan 15.50 hefst bein útsending frá öðrum leik í einvígi Vals og Þórs Akureyrar í Bónus deild kvenna í körfubolta.
Klukkan 18.45 hefst beint útsending frá leik Breiðabliks og Aftureldingar í fyrstu umferð Bestu deildar karla í fótbolta.
Stöð 2 Sport 2
Klukkan 19.00 hefst bein útsending frá leik Atlanta Hawks og New York Knicks í NBA deildinni í körfubolta.
Stöð 2 Sport 4
Klukkan 16.00 hefst útsending frá lokadegi á Augusta National Women's Amateur golfmótinu.
Klukkan 22.00 hefst útsending frá T-Mobile Match Play golfmótinu á LPGA mótaröðinni.
Stöð 2 Sport 5
Klukkan 17.50 hefst bein útsending frá öðrum leik í einvígi Stjörnunnar og Njarðvíkur í Bónus deild kvenna í körfubolta.
Klukkan 19.30 hefst Bónus Körfuboltakvöld þar sem farið verður yfir leiki tvö í öllum fjórum einvígunum í átta liða úrslitum Bónus deildar karla í körfubolta.
Vodafone Sport
Klukkan 11.25 hefst bein útsending frá leik Luton og Leeds í ensku b-deildinni í fótbolta.
Klukkan 13.25 hefst bein útsending frá leik Oxford og Sheffield United í ensku b-deildinni í fótbolta.
Klukkan 16.25 hefst bein útsending frá leik Werder Bremen og Frankfurt í þýsku Bundesligunni í fótbolta.
Klukkan 16.25 hefst bein útsending frá leik Köln og Hertha BSC í þýsku b-deildinni í fótbolta.
Klukkan 23.05 hefst beint útsending frá leik Boston Bruins og Carolina Hurricanes í NHL-deildinni í íshokkí.
Klukkan 04.30 hefst beint útsending frá Japanskappakstrinum í formúlu 1.
Eiðfaxastöðin
Klukkan 13.00 hefst útsending frá keppni í tölti í Áhugamannadeild Norðurlands en keppnin fer fram í Léttishöllinni á Akureyri.