Nóró lokaniðurstaðan og endurgreiða veikum gestum Eiður Þór Árnason skrifar 19. júlí 2023 19:26 Veitingastaðir Hamborgarafabrikkunnar í Kringlunni og á Höfðatorgi voru sótthreinsaðir í kjölfar hópsýkingarinnar. Hamborgarafabrikkan Talið er að umfangsmikil hópsýking sem upp kom hjá starfsfólki og gestum á veitingastað Hamborgarafabrikkunnar í Kringlunni hafi verið af völdum nóróveiru. Þetta er niðurstaða embættis sóttvarnalæknis en nokkuð hefur verið á reiki hvort um nóróveirusýkingu hafi verið að ræða eða bakteríu sem veldur líkum einkennum og hefur greinst í álíka hópsýkingum.
Greint var frá því í síðustu viku að hátt í hundrað tilkynningar um smit hafi borist Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Veitingastaðnum var tímabundið lokað í kjölfar sýkingarinnar. „Við teljum að þessari hópsýkingu sé lokið og fólk er svona að jafna sig núna. Þetta tekur auðvitað einhvern smá tíma en við teljum að þetta sé nokkuð ljóst núna,“ segir Ása Steinunn Atladóttir, verkefnastjóri á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins, í samtali við fréttastofu. Bendi til að veiran hafi ekki verið í matvælum Að sögn Hamborgarafabrikkunnar liggur uppruni sýkingarinnar ekki fyrir en sóttvarnalæknir hefur gefið út að veiran virðist hafa smitast milli fólks á veitingastaðnum. „Öll sýni sem tekin hafa verið úr matvælum á staðnum, af hálfu utanaðkomandi sýnatökuaðila, hafa reynst neikvæð og því er ekkert sem bendir til smits úr þeim,“ segir í tilkynningu frá Hamborgarafabrikkunni. Nóróveiran sé víða og ekki nóg að nota spritt Ása, verkefnastjóri sýkingavarna hjá Embætti landlæknis, leggur áherslu á að nóróveiran finnist nú víða hvetur fólk til þess að gæta smitvarna og fara varlega. „Nóróveira er mjög mikið núna út um allt í þjóðfélaginu, við erum að heyra um alls konar veikindi hér og þar sem virðist dálítið vera nóróveira. Þannig að það væri gott að minna fólk á mikilvægi handþvottarins og að passa sig,“ segir Ása og bendir fólki á leiðbeiningar á heimasíðu Landlæknisembættisins. Þá minnir hún á að handspritt dugi skammt eitt og sér þegar nóróveiru er við að etja og varar eindregið við því að fólk sem vinni með matvæli notist of mikið við einnota hanska. „Handþvotturinn er nauðsynlegur og það að vera með hanska og ganga með þá um út um allt er bara falskt öryggi. Og í raun og veru sóðaskapur. Maður þarf ekki endilega alltaf að vera með hanska, maður þarf bara að þvo sér um hendurnar.“ Boðin endurgreiðsla María Rún Hafliðadóttir, framkvæmdastjóri Hamborgarafabrikkunnar, segir í tilkynningu að búið sé að sótthreinsa allt inn á staðnum í Kringlunni og á veitingastað þeirra á Höfðatorgi. Þá sé búið að taka sýni úr hráefni. „Þau sýni hafa öll reynst neikvæð og ekkert bendir til þess að veikindin megi rekja til þess. Við erum ánægð að hafa náð að útiloka það. Á fundi með heilbrigðiseftirlitinu í dag fengum við staðfest að um Nóró-veiru væri að ræða og að hún smitist mjög auðveldlega á milli fólks.“ María Rún segir að fólk sem hafi látið vita af sínum veikindum hafi verið boðin endurgreiðsla. „Við viljum leggja mikið á okkur til að viðhalda trausti okkar viðskiptavina og það er mikilvægt að fólk viti að því sé óhætt að halda áfram að koma á Fabrikkuna. Við höfum átt gott samstarf við viðeigandi eftirlitsaðila, en þetta er góð áminning um að við þurfum alltaf vera á tánum,“ segir hún í tilkynningu.
Veitingastaðir Heilbrigðismál Reykjavík Kringlan Heilbrigðiseftirlit Tengdar fréttir Líklega ekki nóróveira Líkur eru á að hópsmit á Hamborgarafabrikkunni hafi ekki verið af völdum nóróveiru heldur annarrar þekktar bakteríu, sem áður hefur valdið hópsmiti á veitingastöðum. 16. júlí 2023 18:31 Hafa greint bæði nóróveirur og E.coli bakteríur en ekkert í matnum Gestir Hamborgarafabrikkunnar greindust sannarlega með nóróveiru. Frá þessu greinir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is en áður var talið að um bakteríusýkingu hefði verið að ræða. 19. júlí 2023 06:37 Fabrikkan í Kringlunni opin á ný Hamborgarafabrikkan í Kringlunni opnaði aftur í gær eftir að hafa lokað um stund eftir að hátt í hundrað tilkynningar bárust heilbrigðiseftirliti vegna mögulegrar nóróveirusmita. Framkvæmdastjóri segir sólahringsvinnu hafa falist í því að sótthreinsa staðinn og henda matvælum. Heilbrigðiseftirlitið segir rannsókn á uppruna veikindanna enn standa yfir. 14. júlí 2023 07:22 Hátt í hundrað manns mögulega smitaðir af nóróveiru Hátt í hundrað tilkynningar hafa borist heilbrigðiseftirliti vegna mögulegra nóróveirusmita. Líkur eru á óvenju stóru hópsmiti á veitingastöðum Hamborgarafabrikkunnar. 13. júlí 2023 19:45 Mest lesið Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Innlent Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Innlent Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Erlent Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Innlent Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Blés til skyndifundar vegna innflutnings gerviópíóða Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Blóðbað, þingmenn ganga á dyr og ógnin við Reykjavík Forsetahjónin á leið til Noregs Lýsa eftir Svövu Lydiu Kristrún ein í framboði til formanns Bæjarstjóri og bæjarfulltrúi saka hvor aðra um brot á siðareglum „Það eru ekki skattahækkanir“ Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bíls Áfrýja og stofna félag um réttinn til að mótmæla Munu ekki hlaupa síðustu metrana í Geirsgötu fyrr en 2026 Allir og amma þeirra keppast um að skilgreina „woke“ Borgarfulltrúi Pírata í veikindaleyfi Óvenjumargir sem sæta gæsluvarðhaldi í fangelsum landsins Ber ekki ábyrgð á tjóni stuðningsfulltrúa sem nemandi beitti ofbeldi Óbólusettir ættu að huga að sinni stöðu fyrir ferðalög „Sá merkasti sem ég hef nokkurn tímann kynnst“ Rauðir markaðir og yfirfull fangelsi Dæla tölvupóstum á ráðherra Segir stjórn sósíalista ræða „pólitískar hreinsanir“ fyrir flokksþing Segist afhjúpa sannleikann í „tengdamömmumálinu“ Bændur fá bætur fyrir hörmungasumarið í fyrra Björguðu dreng úr gjótu Kominn tími til að rapparar og áhrifavaldar axli ábyrgð Friðrik Ólafsson er látinn Sjá meira
Líklega ekki nóróveira Líkur eru á að hópsmit á Hamborgarafabrikkunni hafi ekki verið af völdum nóróveiru heldur annarrar þekktar bakteríu, sem áður hefur valdið hópsmiti á veitingastöðum. 16. júlí 2023 18:31
Hafa greint bæði nóróveirur og E.coli bakteríur en ekkert í matnum Gestir Hamborgarafabrikkunnar greindust sannarlega með nóróveiru. Frá þessu greinir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is en áður var talið að um bakteríusýkingu hefði verið að ræða. 19. júlí 2023 06:37
Fabrikkan í Kringlunni opin á ný Hamborgarafabrikkan í Kringlunni opnaði aftur í gær eftir að hafa lokað um stund eftir að hátt í hundrað tilkynningar bárust heilbrigðiseftirliti vegna mögulegrar nóróveirusmita. Framkvæmdastjóri segir sólahringsvinnu hafa falist í því að sótthreinsa staðinn og henda matvælum. Heilbrigðiseftirlitið segir rannsókn á uppruna veikindanna enn standa yfir. 14. júlí 2023 07:22
Hátt í hundrað manns mögulega smitaðir af nóróveiru Hátt í hundrað tilkynningar hafa borist heilbrigðiseftirliti vegna mögulegra nóróveirusmita. Líkur eru á óvenju stóru hópsmiti á veitingastöðum Hamborgarafabrikkunnar. 13. júlí 2023 19:45