Gareth Southgate er þjálfari karlalandsliðs Englands og hefur verið það frá tapinu vandræðalega á móti Íslandi á EM sumarið 2016.
Ef eða þegar Southgate hættir með karlalandsliðið þá þykir Sarina Wiegman, þjálfari kvennalandsliðsins, koma til greina ef marka má Mark Bullingham, stjórnarformann enska sambandsins.
#England #Lionessess #ThreeLions
— MR. GOLDFINGER (@Dr___H___Lekter) August 17, 2023
THE FA TODAY:
Any approach for England s Sarina Wiegman would be "100% rejected", says FA chief executive Mark Bullingham
ALSO THE FA TODAY :
FA considering Sarina Wiegman as a potential replacement for Gareth Southgate#ItsComingHome https://t.co/JCkWZoVVot pic.twitter.com/vEi6fSVgWp
Wiegman er enn á ný búin að koma enska kvennalandsliðinu í úrslitaleik en liðið spilar um heimsmeistaratitilinn við Spán á sunnudaginn. Enska landsliðið varð Evrópumeistari fyrir þrettán mánuðum síðan og vann meistarakeppni Evrópu og Suður-Ameríku í vor.
Áður en hún tók við enska landsliðinu þá hafði hún gert Holland að Evrópumeisturum. Enska landsliðið hefur misst marga lykilmenn úr Evrópumeistaraliðinu en Wiegman er samt búin að búa til annan frábæran og samheldan hóp.
Wiegman er með samning við enska sambandið til ársins 2025. Það er vitað að bandaríska sambandið hefur mikinn áhuga á að fá hana til að taka við sínu landsliði nú þegar Vlatko Andonovski er hættur eftir hörmulegt heimsmeistaramót.
„Fólk segir alltaf að finna besta manninn í starfið eða að besta Englendinginn. Af hverju þarf þetta að vera karl? Ég held að okkar svar sé alltaf að finna besta einstaklinginn í starfið. Við teljum að Sarina sé að gera frábæra hluti og heldur því vonandi lengi áfram. Ég held að Sarina geti gert það sem henni langar til í fótboltanum,“ sagði Mark Bullingham í samtali við ESPN.
„Ef hún á einhverjum tímapunkti vill færa sig yfir í karlafótboltann þá yrði þetta mjög áhugavert skref. Það er samt fyrir hana að ákveða slíkt. Ég tel ekki að við lítum á það sem svo að þetta væri stöðuhækkun. Ef hún vill hins vegar prófa að fara í aðra átt þá tel ég að hún ráði vel við það,“ sagði Bullingham.
| The English Football Association will consider Sarina Wiegman as a candidate to take charge of the senior men's team if, or when, Gareth Southgate moves on from his role as manager, FA chief executive Mark Bullingham said.#Lionesses | #ThreeLions
— Everything England (@TheEngllshGame) August 17, 2023
(@MarkOgden_ // pic.twitter.com/Wv9wNckybK