Skýrsla Mannréttindavaktarinnar byggir á lýsingum vitna og myndum sem sýna lík og grafreiti á þekktum leiðum farandverkamanna. Samtökin telja að tala fallinna gæti jafnvel náð þúsundum. Vitni segjast hafa séð sádiarabíska landamæraverði skjóta á eþíópískt förufólk og varpa að því sprengjum.
AP-fréttastofan segir að Sameinuðu þjóðirnar hafi krafið Sáda skýringa á fréttum af því að þeir hafi skotið á förufólk við landamærin að Jemen í október. Í bréfi SÞ til konungsdæmisins sagði að það hefði valdið dauða allt að 430 manna og sært 650 aðra. Þar var einnig vísað til frásagna af því að förufólk sem er tekið höndum sæti pyntingum.
Sádar höfnuðu því að þeir stunduðu kerfisbundin dráp á landamærunum í svarbréfi til Sameinuðu þjóðanna í mars. Þeir sögðu upplýsingarnar í upphaflegu bréfi Sameinuðu þjóðanna svo takmarkaðar að þeir gætu ekki staðfest eða sannreynt hvort að þær ættu við rök að styðjast.

Stjórnvöld í Sádi-Arabíu hafa sent þúsundir Eþíópíumanna til síns heima undanfarin misseri. Talið er að um 750.000 Eþíópíumanna séu í Sádi-Arabíu, allt að 450.000 þeirra ólöglega. Tugir þúsunda manna hafa flúið borgarastríð í Tigray-héraði í norðanverðri Eþíópíu undanfarin tvö ár.
Sádar hafa leitt hernaðaríhlutun í harðvítugu borgarastríði sem hefur geisað í Jemen frá árinu 2014. Uppreisnarmenn Húta, sem Sádar berjast gegn, eru sagðir hafa tekjur af því að smygla förufólki yfir landamærin.