Framlengdi í sumar en er nú látinn taka poka sinn 74 ára gamall Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. september 2023 15:00 Neil Warnock verður atvinnulaus annað kvöld. William Early/Getty Images Neil Warnock mun stíga til hliðar sem þjálfari Huddersfield Town eftir leikinn gegn Stoke City í ensku B-deildinni í knattspyrnu annað kvöld. Hinn 74 ára gamli Warnock framlengdi veru sína hjá Huddersfield í sumar eftir að halda liðinu uppi en hefur ákveðið að nú sé nóg komið.
Í febrúar á þessu ári tók Warnock fram þjálfaragallann á nýjan leik og bjargaði Huddersfield frá falli. Þetta var í annað sinn sem hann tekur við þjálfun liðsins en hann stýrði því einnig frá 1993 til 1995. Warnock hefur fyrir löngu gefið út að hann sé hættur í þjálfun en eftir síðasta tímabil ákvað hann að semja við Huddersfield til eins árs. Tímabilið byrjaði illa en liðið hefur þó unnið síðustu tvo leiki sína. Samt sem áður ákvað Huddersfield að breyta þyrfti og er stefnan að ráða inn mann sem getur stýrt liðinu til lengri tíma. Warnock er ekki að hætta vegna heilsu sinnar þó 74 ára gamall sé og hefur gefið út að hann ætli að halda áfram að þjálfa. Á blaðamannafundinum þar sem tilkynnt var að hann myndi stíga til hliðar grínaðist Warnock með að kannski myndi hann fá tilboð frá Sádi-Arabíu upp á fleiri hundruð milljónir. "I might get offered £5m tomorrow to go to Saudi" Neil Warnock on what's next for him after stepping down as Huddersfield manager pic.twitter.com/zgy2JipnJG— Sky Sports Football (@SkyFootball) September 18, 2023 Þjálfaraferill Neil Warnock hófst árið 1980 og hefur hann stýrt liðum á borð við Cardiff City, Crystal Palace, Leeds United, Sheffield United og Middlesbrough.
Enski boltinn Mest lesið Vignir Vatnar lagði Magnus Carlsen Sport Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Enski boltinn Uppgjörið: FH - KR 2-2 | Bæði lið enn án sigurs Íslenski boltinn Hörður undir feldinn Körfubolti Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Enski boltinn Leik lokið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom til bjargar Sport „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Íslenski boltinn Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Enski boltinn Félögin vilja ekki knattspyrnukonur með börn Sport Fleiri fréttir Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Klásúlan virkjuð en enn óvíst hvort Chelsea kaupi Sancho Dramatík í Manchester United vill fá Cunha Kom þriðja liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrstu tilraun Leið eins og BBC vildi losna við hann úr Match of the Day Reyna að lesa eitthvað út úr fagni Trents Alexander-Arnold Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Sjá meira