Í nýjasta þætti Kompáss er fjallað um fegrunaraðgerðir á snyrtistofum en í dæmi konunnar var um meðferðaraðila að ræða sem sprautaði hana með efni sem hann hefur enga heimild til að nota.
Þá fjöllum við um nýja Þjóðhagsspá Íslandsbanka sem birtist í morgun en nú hægist á hagvexti, verðbólgan fer minnkandi og stýrivextir munu ná hámarki fyrir árslok, gangi spáin eftir.
Einnig segjum við frá deilu um vörumerkið Icelandia en eigandi fyrirtækis með þessu nafni sakar forsvarsmenn Kynnisferða um að hafa stolið nafninu.