Þar kemur fram að rekstrarafkoma af samstæðu Isaviu fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á fyrri helmingi ársins 2023 hafi verið jákvæð um 1.777 milljónir króna samanborið við 968 milljónir króna fyrri sama tímabil á síðasta ári. Aukning sem nemur 809 milljónum króna.
Enn fremur kemur fram að tekjur samstæðunnar hafi aukist um 4.272 milljónir krónamilli tímabili. Þær námu 20.085 milljónum króna. 3,4 milljónir farþega fóru um Keflavíkurflugvöll á fyrstu sex mánuðum ársins.
Rekja neikvæð áhrif til gengisáhrifa
Í tilkynningu Isavia segir að lækkun Isavia á heildarafkomu um 221 milljón króna megi rekja til breyinga á gengisáhrifum vegna langtímalána í erlendri mynt. Fjárfestingar samstæðunnar námu um 8.197 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og segir Isavia að rekja megi langstærsta hlutann, eða um 7.082 milljónir króna til framkvæmda á Keflavíkurflugvelli.
„Rekstur samstæðu Isavia á fyrstu sex mánuðum ársins var nokkuð í takt við okkar eigin væntingar.“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Við höfum eins og önnur fyrirtæki fundið vel fyrir kostnaðarhækkunum síðustu missera og erum að róa öllum árum að því að mæta þeim.“
Langtímaáætlanir félagsins gera ráð fyrir frekari uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli. „Á sama tíma og við erum að eiga við kostnaðarhækkanir þá gera okkar áætlanir ráð fyrir áframhaldandi vexti í fjölda farþega sem mun fara um Keflavíkurflugvöll“ segir Sveinbjörn. „Við munum því áfram leggja áherslu á uppbyggingu á flugvellinum ásamt því að styrkja aðra innviði félagsins.“