Alls komu um 790 þúsund erlendir ferðamenn til landsins um Keflavíkurflugvöll síðastliðið sumar. Það eru fimmtungi fleiri en í fyrra en sumarið er það næstfjölmennasta frá því mælingar hófust hjá Ferðamálastofu. Mestur fjöldi var árið 2018 og var fjöldinn í ár um 98 prósent af því sem hann var árið 2018 þegar fjöldinn var mestur. Stofnunin spáði í upphafi árs að 2,3 milljónir ferðamanna myndu koma til Íslands á árinu.
Í tilkynningu Ferðamálastofu kemur fram að Bandaríkjamenn hafi verið um 300 þúsund og þannig verið langfjölmennastir. Næstfjölmennastir voru Þjóðverjar en þeir voru um 60 þúsund og Pólverjar í þriðja sæti, alls um 52 þúsund. Aðrar fjölmennar þjóðir voru Frakkar, sem voru 40 þúsund, og Bretar sem voru 35 þúsund.
Flestir í fríi
Langflestir eða um 95 prósent þeirra sem komu voru í fríi á Íslandi í sumar. Um 1,9 prósent voru í heimsókn hjá vinum og ættingjum og um 1,4 prósent í viðskiptatengdum tilgangi. Um 1,8 prósent voru á landinu í annars konar tilgangi.
Ferðamenn dvöldu að jafnaði 8,6 nætur á ferðalögum um Ísland í sumar eða jafnmargar nætur og í fyrrasumar.
Bandaríkjamenn sem vega þyngst vegna hárrar hlutdeildar, dvöldu að jafnaði 6,9 nætur sumarið 2023, álíka margar og í fyrrasumar. Af tíu fjölmennustu þjóðernunum dvöldu Þjóðverjar og Frakkar lengst eða 10,9 nætur að jafnaði. Þar á eftir komu Spánverjar, Ítalir og Hollendingar með dvalarlengd á bilinu 8,8 til 9,5 gistinætur.
Um níu af hverjum tíu heimsóttu höfuðborgarsvæðið, um átta af hverjum tíu Suðurland, um sjö af hverjum tíu Reykjanes, ríflega helmingur Vesturland, tæplega helmingur Norðurland og ríflega fimmtungur Vestfirði.
Í tilkynningu Ferðamálastofu er einnig farið ítarlega yfir gistinætur á hótelum og nýtingu herbergja en gistinætur erlendra ferðamanna hafa aldrei mælst svo margar að sumri til. Í heildina voru þær 4,3 milljón talsins sem er 8,6 prósent meira en í fyrra.
Milljón gistinætur Íslendinga
Um tveimur af hverjum fimm gistinóttum var eytt á hótelum, um 14 prósent á gistiheimilum og tæplega helmingi (46,3 prósent) í annars konar gistingu.
Gistinætur útlendinga í skráðri gistingu mældust tæplega 3,3 milljón talsins síðastliðið sumar eða 8,6 prósent fleiri en sumarið 2018 og 11,1 prósent fleiri en sumarið 2019. Aukninguna má að miklu leyti rekja til lengri dvalarlengdar ferðamanna en hún mældist fyrir faraldur.
Gistinætur Íslendinga voru í kringum milljón síðastliðið sumar og helst það í hendur við þá þróun sem varð á tímum faraldursins að landsmenn fóru að nýta sér þjónustu gististaða í auknum mæli.
Hægt er að kynna sér tölurnar nánar hér á vef Ferðamálastofu.