Þetta kemur fram í bréfi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur (HER) til Vy-þrifa þann 31. október.
Forsaga málsins er sú að eftirlitið fór í heimsókn í kjallarann 27. september vegna gruns um geymslu matvæla án tilskilinna leyfa. Þar kom í ljós að húsnæðið var óhreint, ekki meindýrahelt auk þess sem ummerki voru greinileg í formi rottuskíts og rottuþvags meðal annars ofan á umbúðum matvæla.

Þá voru vísbendingar á staðnum um að fólk hefði dvalið þar. Meðal annars fundust dýnur, koddar, matarílát og tjald ofan á sekkjum.
Nagað sig í gegnum matvælasekki
Heilbrigðiseftirlitið tók yfirlitsmyndir af vörum og húsnæði. Minnisbók sem fannst á staðnum var tekin til frekari skoðunar. Matvæli voru bæði í sekkjum og kössum, að minnsta kosti 28 bretti með sekki og að minnsta kosti 26 bretti af matvælum í kössum. Einnig voru átján frystikistur fullar af ýmis konar matvælum.
Á staðnum voru einnig ýmis matvælaáhöld, borðbúnaður, eldunarbúnaður, stór suðupottur, panna, þvottavél, bíldekk, kælar, handklæði í pokum, stólar, borð og fleira.

„Rýmið var óhreint bæði gólf og veggir og búnaður. Ekki var lýsing í öllum rýmum og því ekki hægt að meta ástand allra rýma. Rýmið var ekki meindýrahelt, vörumóttökuhurð var óþétt og ekki voru ristar á niðurföllum. Alls staðar voru ummerki um meindýr. Meindýraspörð og meindýraþvag var víða um rýmið, upp á matvælakössum, ofan í ílátum og um allt gólf. Greinilegt var að meindýr höfðu nagað sig í gegnum matvælasekki því matvæli höfðu lekið úr þeim á gólfið. Megn lykt af meindýrum var í rýminu. Aðstæður á staðnum voru með öllu óviðunandi fyrir matvælageymslu,“ segir í eftirlitsskýrslu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Skýringar fulltrúa Vy-þrifa voru þær að um væri að ræða afgang af lager sem hann átti frá verslun sem hann hafði selt á árinu áður. Óskaði hann eftir að fá að flytja matvælin annað. Að hans sögn stóð til að farga hluta þeirra en fyrst þyrfti að flokka þau.

Heilbrigðiseftirlitið segir fulltrúa Vy-þrifa á staðnum hafa óskað eftir því að fá að nýta hluta matvælanna. Mat eftirlitsins hafi verið að þau gætu öll verið hættuleg heilsu manna enda geymd við óheilsusamlegar aðstæður. Ákvað eftirlitið að stöðva alla matvælastarfsemi og farga öllum matnum. Var húsnæðið innsiglað.
Daginn eftir fundaði eftirlitið með forsvarsmönnum Vy-þrifa þar sem farið var yfir framkvæmd förgunar. Fyrirtækið óskaði eftir því að fá að sjá um það sjálft og var fallist á það með þeim fyrirvara að heilbrigðiseftirlit stýrði aðgerðum og starfsmenn Vy-þrifa færu að fyrirmælum.

Þann 29. september fór eftirlitið í Sóltún til að hafa eftirlit með förgun, skrá upplýsingar, gefa fyrirmæli og staðfesta förgun.
„Förgunin gekk hægt, starfsmenn Vy-þrifa fóru ekki að fyrirmælum HER og þegar nokkuð var liðið á förgunina uppgötvaðist að starfsmenn voru að koma matvælum undan. Því var tekin ákvörðun um að stöðva förgunina.“

Þann 2. október var svo haldið áfram með förgun matvæla með aðstoð verktaka sem fenginn var í verkið.
Við rannsókn málsins hefur komið í ljós að í húsnæðinu voru meðal annars geymd 4912 kíló af matvælum sem voru nýlega innflutt til landsins. Það er mat eftirlitsins að matvælin hafi verið ætluð til dreifingar enda magnið slíkt að ólíklegt væri að þau væru ætluð til einkanota.

Ljóst sé því að mati Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að húsnæðið var notað til geymslu matvæla sem ætluð voru til dreifingar og neyslu. Sú skýringar Vy-þrifa að matvælin hafi verið geymd fyrir förgun er ekki talin trúverðug.
Þá segir í bréfi eftirlitsins að Vy-þrif hafi brotið fjölmörg ákvæði matvælalaga og reglugerða. Matvælafyrirtæki séu ekki ætluð til íbúðar eða gistingar.
Davíð Viðarsson, framkvæmdastjóri og eigandi þrifafyrirtækisins Vy-þrifa og betur þekktur undir víetnömsku nafni sínu Quang Le, sagði í skriflegri orðsendingu til fréttastofu á dögunum ekki ætla að tjá sig um rannsókn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á fyrirtækinu.
Davíð er einnig eigandi phoVíetnam veitingastaðakeðjunnar sem rekur nokkra veitingastaði í Reykjavík.
Að neðan má sjá fleiri myndir frá vettvangi í kjallaranum í Sóltúni 20 sem Vy-þrif hafði á leigu.


















Fréttin er í vinnslu.