xZeRq og félagar hans í Sögu eru ósigraðir í Blast-uumspilinu eftir leiki gærkvöldsins en liðið lagði Þór og Ármann í gær.
Ásamt Sögu eru liðsmenn NOCCO Dusty ósigraðir og má búast við því að þessi tvö lið muni berjast um sæti á Blast-mótaröðinni.
xZeRq sýndi einnig frábær tilþrif í gær er Saga og Ármann áttust við þegar hann tók á móti fjórum liðsmönnum Ármanns, felldi þá alla og kláraði lotuna fyrir sína menn.
Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.