Skoðun

Úr­ræði fyrir þol­endur á lands­byggðinni

Erla Hrönn Hörpu Unnsteinsdóttir skrifar

Þolendur á landsbyggðinni búa misvel að úrræðum þegar þeir verða fyrir ofbeldi. Frí og þolendamiðuð þjónusta er mikilvæg og aðgengi einstaklinga að slíkri þjónustu er mjög ólík á milli landshluta. Aflið þjónustar nokkur sveitarfélög en það má segja að þjónusta Aflsins sé sterkust á Norðurlandi eystra þar sem aðal starfsstöð Aflsins er. Ástæða þess er ekki fjöldi ráðgjafa eða starfmanna heldur vegna samstarfsaðila samtakanna sem eru einungis staðsettir á Norðurlandi eystra. Þeir samstarfsaðilar eru Bjarmahlíð og Kvennaathvarfið. Aflið sinnir ákveðnu hlutverki sem þessir samstarfsaðilar geta ekki sinnt og öfugt. Starfsemi þeirra og þjónusta eru gífurlega mikilvæg og samstarf á milli þessara samtaka er nauðsynlegt og gerir þeim kleift að veita einstaklingum betri þjónustu en ella.

Við getum að sjálfsögðu alltaf haft samband við Bjarmahlíð og Kvennaathvarfið fyrir einstaklinga sem búa fyrir utan okkar aðal starfsstöð en þjónustan sem þessi samtök geta veitt þeim er oft háð því að þeir séu á Akureyri. Konur alls staðar á landsbyggðinni geta leitað í Kvennaathvarfið á Akureyri, en hversu langt á kona að þurfa að ferðast til þess að komast í öryggi? Bjarmahlíð og Aflið geta tekið fjarviðtöl við einstaklinga hvar sem er á landinu, en eiga einstaklingar ekki rétt á að velja hvort þeir fái stað- eða fjarþjónustu? Búseta á ekki að hafa áhrif á hvernig þjónustu þú getur fengið, búseta á ekki að segja til um hversu lengi þú þarft að keyra til þess að hitta fagaðila eða komast í skjól frá ógn, búseta á ekki að ákvarða hvernig eða hvenær þú vinnur úr afleiðingum ofbeldis.

Húsnæði Aflsins við Aðalstræti 14 á Akureyri. Aðsend

Aflið hefur unnið að því að opna fleiri starfsstöðvar á landsbyggðinni og hefur það sýnt að þegar úrræðið stendur til boða, þá fjölgar einstaklingum sem nýta sér þjónustuna á því svæði. Sem gefur til kynna að nálægð við úrræði auki líkurnar á því að fólk leiti sér hjálpar.

Úrræði á landsbyggðinni þurfa auknar fjárveitingar til þess að sinna allri landsbyggðinni jafn vel. Eins og staðan er í dag er frí þolendamiðuð þjónusta á landsbyggðinni ekki viðunandi. Aflið er með viðtalsþjónustu í fimm bæjarfélögum og í einu þeirra eru Kvennaathvarfið og Bjarmahlíð.

Hvað eru aftur mörg bæjarfélög á landsbyggðinni?

Höfundur er framkvæmdarstýra Aflsins. Greinin er birt í tengslum við alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×