Þetta hafi hann sýnt þegar hann nafngreindi hana á Instagram fyrir að hafa ekki ákveðið að selja bókina hans í verslunum Bónus og hvatti þúsundir fylgjendur sína til að senda á hana tölvupóst og krefja hana um að selja bókina í versluninni.
Í annarri færslu sem Þorsteinn birti á Instagram í dag segir Þorsteinn sig sannarlega hafa verið ósáttan með ákvörðun Esterar en að honum þyki leitt að hafa blandað henni persónulega inn í málið og sýnt í leiðinni karllægt yfirlæti.
„Það var klárlega rangt að gera þig að skotspóni míns ósættis. Ég hljóp á mig. Sorrí, Ester,“ skrifar Þorsteinn.
Karlremba í bataferli
Hann segir jafnframt að þó hann beiti sér markvisst fyrir feminískum gildum sínum þá sé hann í grunninn karlremba og líti á sig sem karlrembu í bataferli. Þorsteinn segir að innsýn sín í viðfangsefni sín, þriðju vaktina og skaðlega karlmennsku, sé hans helsti styrkleiki en á sama tíma veikleiki.
„Sérstaklega þegar ég gæti ekki að mér og vanda mig. Þá á ég það til að kallakallast yfir mig og jafnvel valta yfir fólk. Eins og Ester,“ bætir hann við í færslunni.
Þorsteinn segir þó að bókin sé sem betur fer ekki skrifuð af honum einum heldur eiginkonu sinni Huldu Tölgyes sem er sálfræðingur. Bókin byggi jafnframt á 130 heimildum, aðsendum reynslusögum og reynslu þeirra hjóna.
„Ester, ég skal senda þér eintak — ef þú hefur áhuga,“ skrifar Þorsteinn að lokum.