Á myndum frá vettvangi má sjá eld koma út um glugga vélarinnar og undir vélinni. Mikinn eld var líka að sjá á flugbrautinni.
NHK hefur eftir heimildarmönnum að vélin kunni að hafa rekist á flugvél japönsku strandgæslunnar eftir lendingu á vellinum. Ekki er vitað um afdrif þeirra sem í vél strandgæslunnar voru, alls sex, en þó er vitað að einn hafi komist lífs af.
Vél Japan Airlines, JAL 516, var að koma frá Shin Chitose-flugvellinum á Hokkaido þegar hún lenti á Haneda-flugvelli.
Talsmaður Japan Airlines segir að 379 hafi verið um borð í vélinni og hafi tekist að bjarga þeim öllum frá borði.

Fréttin hefur verið uppfærð.