Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra greindi frá því í gær að hún hygðist ekki segja af sér, þrátt fyrir að Umboðsmaður Alþingis hafi komist að þeirri niðurstöðu að frestun hennar á hvalveiðum í sumar, með eins dags fyrirvara, hafi skort lagastoð og að meðalhófs hafi ekki verið gætt.
Forsætisráðherra segir mikilvægt að niðurstaða Umboðsmanns verði tekin alvarlega og unnið verði úr henni.
„Ég tel ekki að þetta álit gefi neitt tilefni til afsagnar ráðherra, þó að einhverjir hafi látið hafa það eftir sér,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Meðal þeirra er Gísli Rafn Ólafsson þingmaður Pírata. Í kvöldfréttum í gær sagði hann flokk sinn telja eðlilegast að Svandís segði af sér embætti.
Málið hefur verið sett í samhengi við álit Umboðsmanns um hæfisskort Bjarna Benediktssonar í sölunni á Íslandsbanka, sem leiddi til afsagnar Bjarna sem fjármálaráðherra. Bjarni hafði í kjölfarið stólaskipti við Þórdísi Kolbrúnu Reykjförð Gylfadóttir og fór í utanríkisráðuneytið.
Er þetta ekki sambærilegt?
„Umboðsmaður kemur auðvitað með mörg álit, og ráðherrar bregðast við þeim með sínum hætti. Bjarni tók sína ákvörðun og það var ákvörðun sem ég skildi og virti. En það var bara hans ákvörðun að taka til að bregðast við því áliti.“

Óánægja Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lá fyrir
Forsætisráðherra hafi rætt við formenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks eftir að álitið kom fram. Óánægja með ákvörðun Svandísar í sumar innan Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hafi legið fyrir.
„Auðvitað hefur þetta mál að því leyti haft áhrif á samstarfið. En ég lít líka svo á að það sé mjög einarður vilji til þess að takast á við þau stóru verkefni sem ríkisstjórnin ætlar sér að takast á við,“ segir Katrín.
Mörg stærri mál blasi við ríkisstjórninni, þó taka beri álitið alvarlega.
„Ég tel þetta ekki vera mál sem gefur tilefni til stjórnarslita.
Eða afsagnar ráðherra?
„Nei.“
Reyna að vinna í samráði við Hval
Verkalýðsleiðtoginn á Akranesi segir niðurstöðu Umboðsmanns í engu koma á óvart. Hvalur hf. hefur boðað skaðabótamál á hendur ríkinu vegna ákvörðunarinnar, vegna tjóns sem félagið og starfsmenn þess kunni að hafa orðið fyrir. Þar eru margir félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness undir.
„Þetta er flókið viðfangsefni og ég mun hafa samband við fyrirtækið. Vonandi getum við gert þetta í sameiningu,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Vilhjálmur telur augljóst hvernig Svandís eigi að axla ábyrgð, vísar til afsagnar Bjarna Benediktssonar og segir hana fordæmisgefandi.
„Ég tel að viðkomandi ráðherra eigi þá að fara úr viðkomandi ráðuneyti.“
Vihjálmur lét mikið til sín taka í umræðu um ákvörðun Svandísar í sumar, og blés meðal annars til opins fundar á Akranesi vegna málsins. Þar var húsfyllir þegar þingmenn norðvesturkjördæmis mættu til að ræða ákvörðunina, ásamt Svandísi sjálfri. Upptöku frá fundinum má sjá hér.