„Maður er svona hálf tómur ennþá að reyna að melta þetta afþví það fór það margt úrskeiðis. Eins og alltaf á þessum stórmótum er lítill tími að velta fyrir sér hlutunum. Nú er bara nýr leikstaður, ný tækifæri, við þurfum að stilla saman strengi og ná saman einum góðum leik svona til að byrja með.“
Hann sagði ærandi þögn hafa verið í búningsherbergi liðsins eftir leik, þaðan var farið upp á hótel og fundað, en menn eru enn skelkaðir eftir skellinn.
„Þögnin var aðallega í klefanum í gær. Svo tókum við fund þegar við komum upp á hótel, hvað við getum gert. Eins og ég segi, maður er enn hálf skelkaður eftir þetta. En við verðum bara að rífa okkur í gang, þú getur annað hvort lagst niður eða reynt að rísa upp og það ætlum við að reyna á morgun.“
Bjarki var svo spurður hvað honum fyndist vandamálið vera sem héldi liðinu aftur, hann sagði það ekki eitt heldur allt.
„Mér finnst þetta vera bara alls staðar, við erum ekki að nýta færin, tæknifeilar, varnarlega getum við gert betur. Ég held að það sé jákvætt að því leytinu til, þetta þarf bara að smella og þá kemur. Alls ekki búið að vera gott hingað til og vonandi breytist það á morgun“
Íslenska liðið er komið til Kölnar og mætir Þýskalandi í fyrsta leik milliriðilsins á morgun. Þjóðverjarnir eru þekkt stærð en Bjarki telur Ísland eiga góðan möguleika.
„Þetta eru leikmenn sem maður þekkir vel. Með einn á miðjunni sem ræður för, Juri Knorr, sterkan markmann og heilt yfir gott lið en lið sem við eigum góðan möguleika gegn. “
Að lokum var Bjarki spurður hvernig hugarfar leikmanna væri fyrir leik.
„Bara veit það ekki, get ekki svarað því núna“ sagði hann að lokum, spenntur fyrir því að sanna styrk liðsins í átökum morgundagsins.
Næsti leikur, fyrsti leikurinn í milliriðli, fer fram á morgun gegn Þýskalandi. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Íþróttadeild Sýnar er í Köln og mun fjalla ítarlega um allt sem tengist leiknum í máli og myndum.