Íslenska karlalandsliðið í handbolta á ekki lengur möguleika á að komast á Ólympíuleikana í París. Þetta var ljóst eftir sigur Frakklands á Ungverjalandi, 35-32, í milliriðli 1 á EM í Þýskalandi í dag.
Þar sem Íslendingum mistókst að vinna Austurríkismenn með fimm marka mun fyrr í dag þurftu þeir að treysta á að Ungverjar tækju stig af Frökkum. Það gekk ekki eftir og Ísland fer því ekki í forkeppni Ólympíuleikanna í mars.
Tapið var líka dýrt fyrir Ungverjaland en með sigri hefði liðið enn átt möguleika á að komast í undanúrslit EM. Sá draumur Ungverja er úr sögunni en þeir mæta Slóvenum í leiknum um 5. sætið á mótinu. Frakkar eru hins vegar komnir í undanúrslit og mæta þar Svíum.
Þrátt fyrir ágætis byrjun Ungverjalands í leiknum í dag var Frakkland alltaf með töglin og haldirnar, þrátt fyrir að hafa að litlu að keppa.
Frakkar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 20-18. Ungverjar jöfnuðu í 21-21 en frönsku Ólympíumeistararnir voru alltaf með stjórn á leiknum, þrátt fyrir að hafa ekki skorað í um tólf mínútur um miðbik leiksins.
Franska liðið vann á endanum þriggja marka sigur, 35-32, í miklum markaleik. Nedim Remili var markahæstur Frakka með sjö mörk en Dika Mem skoraði sex. Bence Bánhidi og Miklós Rosta skoruðu fimm mörk hvor fyrir Ungverja.