Litlu augnablikin og notalegar samverustundir er yfirleitt það sem er eftirminnilegast. Lífið á Vísi tók saman lista yfir skotheldar hugmyndir sem ættu að gleðja bændur landsins.
Fyrir sælkerann
Rómantísk kvöldstund heima.
Steik, rauðvín og kertaljós klikkar seint.

Bjór bjór bjór
Keyptu nokkrar mismunandi tegundir af bjór og pakkaðu smekklega inn. Úrval óáfengra tegunda er til fyrirmyndar í stórmörkuðum landsins, fyrir þá sem það kjósa.

Ostabakki og desert
Rómantísk stund með ostabakka, súkkulaði eða gómsætum eftirrétti er uppskrift að ljúfri samverustund.

Fyrir nautnasegginn
Spa-deit og nudd
Komdu nautnaseggnum þínum á óvart og bjóddu honum í slakandi nudd, heita potta og gufu í tilefni dagsins.

Út að borða
Pantaðu borð á huggulegum veitingarstað og gerið vel við ykkur með fjölrétta matseðli.

Fullnægjandi kvöldstund
Klæddu þig upp í seiðandi undirföt og komdu makanum þínum á óvart með nýju hjálpartæki ástarlífsins.

Sá vandláti
Hótelgisting
Gisting á hóteli, kvöldverður og rómantík kvöldstund.

Óvissuferð um landið
Gisting úti á landi og öðruvísi afþreying. Þar má nefna náttúruböð, ísklifur eða „zip-line“, svo fátt eitt sé nefnt.

Fjölbreytt úrval viðburða
Komdu á óvart með því að bjóða bóndanum í leikhús, uppistand, tónleika eða jafnvel námskeið, kaffinásmskeið eða kokteilanámskeið svo dæmi séu tekin.

Sá nægjusami
Kaffibolli í rúmið
Komdu bónandum á óvart og færðu honum kaffibolla í rúmið í fyrramálið. Ástin felst í litlu hlutunum.

Kúr og bíómynd
Leyfðu bóndanum að velja mynd og keyptu uppáhalds snarlið hans.

Pantaðu mat heim
Pantaðu eftirlætismatinn hans heim og settu rómantíska tónlist á fóninn. Spjallið svo saman um lífið og tilveruna. Tilvalið að spila skemmtilegt borðspil með rauðvín og osta á kantinum.
