Þrátt fyrir það greiddu 22 þingmenn Repúblikanaflokksins atkvæði með frumvarpinu, ásamt nærri því öllum þingmönnum Demókrataflokksins. Atkvæðagreiðslan fór 70-29 en framtíð frumvarpsins í fulltrúadeildinni er ekki björt.
Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar, hefur svo gott sem sagt að frumvarpið verði ekki samþykkt þar. Í yfirlýsingu sem hann birti í gær, gagnrýndi hann frumvarpið á þeim grundvelli að það inniheldur ekki auknar fjárveitingar til öryggisgæslu á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó og leiðir til að sporna gegn fjölgun ólöglegra innflytjenda.
My statement on Senate s failure to address the most critical aspect of national security supplemental legislation: pic.twitter.com/ENjJ0WzKsK
— Speaker Mike Johnson (@SpeakerJohnson) February 13, 2024
Slíkt frumvarp var opinberað fyrr í mánuðinum, eftir margra mánaða viðræður Repúblikana og Demókrata í öldungadeildinni. Það frumvarp hefði falið í sér einhverjar umfangsmestu mögulegu aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó í áratugi og hefðu Repúblikanar náð fram mörgum af baráttumálum sínum með því.
Frumvarpið snerist einnig um hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum, Ísraelum og Taívan en Repúblikanar höfðu notað það sem vogarafl í viðræðum við Demókrata til að ná fram baráttumálum sínum á landamærunum og draga úr fjölda farand- og flóttafólks.
Ástæðan fyrir því að Repúblikanar snerust gegn frumvarpinu er að Donald Trump, fyrrverandi forseti og núverandi forsetaframbjóðandi, vill nota „krísuna“ á landamærunum í kosningabaráttu sinni gegn Joe Biden, fyrir forsetakosningarnar í nóvember.
Repúblikanar í öldungadeildinni sögðu frumvarpið vera einstakt tækifæri fyrir þá, þar sem þeir myndu líklega aldrei aftur hafa sambærilegt vogarafl í viðræðum við Demókrata, jafnvel þó þeir stjórnuðu báðum deildum þings og Hvíta húsinu.
Þeir komu þó sjálfir í veg fyrir framgöngu eigins frumvarps vegna andstöðu Trumps.
Eins og áður segir héldu nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins þingi starfandi í gegnum nóttina með málþófi. Kölluðu þeir eftir því að Bandaríkjamenn ættu að einbeita sér að sínum eigin vandamálum í stað þess að senda fjármagn úr landi.
Thom Tillis, annar þingmaður Repúblikanaflokksins, gagnrýndi flokksmeðlimi sína í pontu í nótt. Hann sagði að hernaðaraðstoðin handa Úkraínumönnum myndi duga þeim í minna en ár og að mest öllum peningnum yrði varið í vopnaframleiðslu í Bandaríkjunum.
Hann sagðist ekki vilja vera á þeim blaðsíðum sögubóka framtíðarinnar þar sem fjallað verður um ákvarðanir sem Bandaríkjamenn muni sjá eftir. Varaði hann við því að bandalag bakhjarla Úkraínumanna gæti hrunið og til lengri tíma yrðu ráðamenn í Kína staðráðnari í að gera innrás í Taívan.
„Ég ætla ekki að vera á þeirri blaðsíðu sögunnar.“
Nokkrir þingmenn Demókrataflokksins í öldungadeildinni eru einnig andvígir frumvarpinu á þeim grundvelli að það felur í sér hergagnasendingar til Ísrael.
„Ég get ekki með góðri samvisku stutt það að senda milljarða af almannafé vegna hernaðar Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra, á Gasaströndinni,“ sagði Peter Welch í morgun samkvæmt AP fréttaveitunni.
„Þessi hernaður hefur banað og sært sláandi fjölda borgara og skapað stærðarinnar mannúðarkrísu.“
Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, hafði orð á því eftir atkvæðagreiðsluna í dag að margir Repúblikanar hefðu greitt atkvæði með frumvarpinu og sagði að ef Johnson leyfði atkvæðagreiðslu um það í fulltrúadeildinni, myndi það njóta sambærilegs stuðnings innan beggja flokka þar.
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, tjáði sig um atkvæðagreiðsluna á samfélagsmiðlum og sagði þakkaði Schumer og Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikana í öldungadeildinni, fyrir stuðninginn.
I am grateful to @SenSchumer, @LeaderMcConnell, and every US Senator who has supported continued assistance to Ukraine as we fight for freedom, democracy, and the values we all hold dear.
— Volodymyr Zelenskyy / (@ZelenskyyUa) February 13, 2024
For us in Ukraine, continued US assistance helps to save human lives from Russian terror.
Hernaðaraðstoð frá Bandaríkjunum er Úkraínumönnum gríðarlega mikilvæg. Frá því hún hætti í desember hefur úkraínska hermenn skort skotfæri fyrir stórskotalið og sömuleiðis flugskeyti í loftvarnarkerfi landsins. Hergagnaframleiðsla bakhjarla Úkraínu í Evrópu annar ekki eftirspurn og vopnabúr þar farin að tæmast.