Nýju lögin voru samþykkt á þýska þinginu fyrir helgi og segir Karl Lauterbach heilbrigðisráðherra Þýskalands að ætlunin sé með þeim að draga úr umsvifum svarts grasmarkaðs og gæta betur kannabisnotkunar barna og ungs fólks.
Hann segir orðræðu andstæðinga löggjafarinnar jafngilda því að „stinga höfðinu í sandinn.“ Grasneysla ungmenna hefur vaxið gífurlega í Þýskalandi unfanfarin ár og ofneysla efnisins getur haft skaðlegar afleiðingar á heilaþroska í för með sér. Kannabisefnin sem eru til sölu ólöglega í dag séu orðin töluvert sterkari en þau voru og erfitt að fylgjast með gæðum þessara efna sem ungt fólk og börn nota í svo ríkulegum mæli.
Lögleiðing kannabisefna hefur verið til umræðu í Þýskalandi í mörg ár. Frumvarpiðvar að lokum samþykkt með 407 atkvæðum gegn 226.
Samkvæmt umfjöllun Guardian nota um sjö milljón Þjóðverjar kannabis með reglulegu millibili og þar af margir í lækningaskyni. Kannabisnotkun barna verður áfram ólögleg sem og notkun efnisins í grennd við skóla og leikskóla.
Ekki eru allir á eitt sáttir við þessa þróun og hefur landstjórn Bæjaralands hreyft mótbárum. Hinn íhaldssami Kristilegi demókrataflokkur sem er þar í meirihluta hefur til að mynda beðið ríkisstjórnina um að endurhugsa löggjöfina.
Þessi nýja löggjöf gerir Þýskaland að þriðja Evrópusambandsríkinu til að lögleiða kannabis til einkanota á eftir Möltu og Lúxemborg.