Utanríkisráðuneytið sendi frá sér tilkynningu í morgun um að tekist hefði að koma þessum stóra hópi yfir Rafah-landamærin í gærkvöldi og í örugga höfn í Kaíró. Sendinefnd á vegum utanríkisráðuneytisins hafði reynt í þónokkrar vikur að greiða leið fólksins en skriður komst á málið þegar Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, óskaði eftir liðsinni Israels Katz, utanríkisráðherra Ísrael.
„Drjúgur meirihluti allra á listanum var á endanum samþykktur þótt það hafi ekki átt við um alla og okkar fólk, sem unnið alveg ótrúlega og merkilega og mikilvæga vinnu á svæðinu, tók þá við keflinu og hjálpaði til við að sækja fólkið og koma því í örugga höfn í Egyptalandi sem verður eins og millilending áður en fólkið kemur alla leið til Íslands,“ sagði Bjarni í símaviðtali sem staddur er á Ítalíu.
Tár og geðshræring eftir langa bið
Alþjóðlega fólksflutningastofnunin (IOM) mun sjá til þess að fólkið fái heilbrigðisskoðun til að ganga úr skugga um að það sé ferðafært í ljósi alls sem gengið hefur á á Gasa. Ferðaáætlun til Íslands mun liggja fyrir í síðasta lagi á morgun. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmálaráðherra gladdist þegar hann heyrði fréttirnar um að árangur hefði náðst í málinu.
„Það var nú bara mikil geðshræring og ég viðurkenni það nú bara fúslega að ég bara táraðist enda einstaklega gleðilegt að þetta skuli hafa gerst og þessi fjöldi bætist þá við þann fjölda sem sjálfboðaliðar hafa aðstoðað. Allt fólkið sem hefur komið að því að koma öllu þessu fólki út af Gasa; sjálfboðaliðar, fólk í stjórnkerfinu hjá okkur, hjá Alþjóðlegu fólksflutningastofnuninni og svo framvegis á allt einstaklega miklar þakkir skildar.“
Munu vinna með sveitarfélögunum að því að finna húsnæði
Guðmundur segir að dvalarleyfishafarnir muni koma til með að setjast að í því sveitarfélagi sem viðkomandi fjölskyldumeðlimur á Íslandi býr í. Sumir úr hópum munu geta flutt beint inn til fjölskyldumeðlima sinna en Guðmundur gerir ráð fyrir að aðrir muni líka dvelja á hóteli á meðan yfirvöld greiða úr húsnæðismálum en finna þarf húsnæði með sveitarfélögunum sem hentar hverri og einni fjölskyldu.
„Við munum að sjálfsögðu aðstoða sveitarfélögin núna til að byrja með varðandi húsnæði því þetta er stór hópur sem kemur. Þótt við höfum búist við honum eða vonast til þess að hann kæmi í alllangan tíma, þá gerist þetta samt hratt.“
Áfallahjálp frá Rauða krossinum
Fólkið hefur mátt búa við skelfilegar aðstæður á stríðshrjáðu Gasasvæðinu. Guðmundur segir ráðuneytið í góðu sambandi við heilsugæsluna og Barnaspítala hringsins.
„Síðan höfum við verið í sambandi við Rauða kross íslands um að taka að sér sálgæslu og veita fólki áfallahjálp og annan sálrænan stuðning sem það vissulega þarf á að halda. Þau eru tilbúin til þess að taka það að sér þannig að það er mjög ánægjulegt.“
Allt kapp sé lagt á að taka vel á móti fólkinu og að stjórnkerfið sé meðvitað um hvers lags aðstæður fólkið er að flýja.
„Við leggjum ríka áherslu á að öll þessi stoðþjónusta sé sem best úr garði gerð því við vitum að fólkið er að koma úr skelfilegum aðstæðum.“