Hann sagði undanfarið ár hafa verið sitt allra versta á þingi.
Buck lét Mike Johnson, forseta fulltrúadeildarinnar, ekki vita af ákvörðun sinni, heldur er hann sagður hafa skilið eftir skilaboð í talhólfi þingforsetans, en ákvörðunin leiðir til þess að naumur meirihluti Repúblikana í fulltrúadeildinni verður enn minni, í bili. Kjördæmið sem Buck er frá þykir mjög íhaldssamt.
Eftir að Buck hættir og þar til að nýr þingmaður verður kjörinn verða Repúblikanar með eingöngu fimm þingmanna meirihluta (218 gegn 213). Nokkur sæti til viðbótar sitja auð en líklegt er að Repúblikanar eigi tvö þeirra inni og Demókratar eitt.
Kosið verður um þingsætið þann 25. júní, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Atkvæðagreiðslan fer fram á sama dag og forval Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í nóvember en í forvalinu velja kjósendur Repúblikanaflokksins sér einnig frambjóðendur til fulltrúadeildarinnar.
Ákvörðun Bucks mun koma niður á tilraunum þingkonunnar Lauren Boebert til að reyna taka við af honum en hann hafði áður sagt að hann ætlaði að setjast í helgan stein eftir þetta kjörtímabil. Boebert er talin eiga meiri séns á endurkjöri í kjördæmi Bucks en í sínu gamla kjördæmi. Flutningur hennar hefur þó valdið pirringi innan flokksins í Colorado.
Sjá einnig: Umdeild þingkona skiptir um kjördæmi
Buck hefur lengi verið gagnrýninn á Donald Trump, fyrrverandi forseta og forsetaframbjóðanda Repúblikanaflokksins,
Eftir að hann tilkynnti ákvörðun sína fór Buck í viðtal á CNN þar sem hann sagði undanfarið ár á þingi hafa verið það versta á hans ferli. Hann væri sannfærður um að árið væri það versta í marga áratugi.
Hann sagðist ætla að reyna að beita sér fyrir því að kosningalögum Bandaríkjanna yrði breytt og að hið pólitíska umhverfi yrði bætt. Þá gagnrýndi hann aðra þingmenn og sagði þingið hafa snúist upp í vitleysu.
"It is the worst year of the 9 years and 3 months that I've been in Congress. And having talked to former members it's the worst year in 40-50 years to be in Congress," GOP @RepKenBuck tells me as he announces he is resigning at the end of next week. pic.twitter.com/CZd1I1CzzN
— Dana Bash (@DanaBashCNN) March 12, 2024
Buck var einn þriggja þingmanna Repúblikanaflokksins sem greiddi atkvæði gegn því að ákæra Alejandro N. Mayorkas, yfirmann heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, fyrir meint embættisbrot og hefur verið gagnrýninn á viðleitni Repúblikana til að ákæra Joe Biden.
Sú viðleitni hefur ekki skilað árangri og lítur út fyrir að hún muni ekki gera það.
Lét Johnson ekki vita
Mike Johnson, tiltölulega nýr forseti fulltrúadeildarinnar, sem tók við eftir ítrekaðar atkvæðagreiðslur í kjölfar þess að Kevin McCarthy, fyrrverandi þingforseta, var vikið úr embætti af hópi einhverra öfgafyllstu þingmanna flokksins, sagði blaðamönnum í gær að ákvörðun Bucks hefði komið sér á óvart.
buck reached out to Johnson but did not get in touch with the speaker. https://t.co/FJRkaG28xm
— Jake Sherman (@JakeSherman) March 12, 2024
Stece Scalise, annar hátt settur þingmaður Repúblikanaflokksins, sló á svipaða strengi og sagðist ekki hafa getað rætt við Buck um ákvörðun hans.
Sjá einnig: Hefur lengi barist gegn réttindum „ónáttúrulegs“ hinsegin fólks
Buck er sagður hafa skilið eftir skilaboð í talhólfi Johnson þar sem hann sagði honum frá ákvörðun sinni. Hann reyndi ekki að láta Johnson vita með neinum fyrirvara. Hann sagði þar að auki í gær að Johnson gæti ekki sannfært sig um að sitja út kjörtímabilið, eins og honum hefði ekki tekist að sannfæra sig um að taka þátt í áðurnefndum ákærutilraunum.
Republican Rep. Ken Buck of Colorado announces he's leaving Congress next week:
— NBC News (@NBCNews) March 12, 2024
"This place just keeps going downhill, and I don't need to spend my time here." https://t.co/fflEfjaWZr pic.twitter.com/OvRKmbCPkl
Þegar hann var spurður um hvort aðrir þingmenn hefðu orðið reiðir út í hann, sagði Buck í samtali við blaðamann Axios að leiðtogar Repúblikanaflokksins ættu frekar að hafa áhyggjur af næstu þremur þingmönnum sem ákveði að hætta.
Repúblikanar í fulltrúadeildinni eru sagðir í óðagoti eftir óvænta kynningu Bucks. Naumur meirihluti þeirra hefur valdið miklum vandræðum á þessu kjörtímabili og en sögulega fá frumvörp hafa orðið á lögum á kjörtímabilinu.
Mörg þeirra frumvarpa sem hafa verið samþykkt, frumvörp um fjárlög og önnur nauðsynleg frumvörp, hafa farið í gegnum þingið með aðstoð þingmanna Demókrataflokksins.