Sýningin fer fram í húsnæði Skyrgerðarinnar, sem er við Breiðumörk 25. Á sýningunni eru verk af fjölbreyttum toga eftir félagsmenn í Myndlistarfélagi Árnessýslu. Sýningin heitir “Gróska” og er þema hennar Hveragerði og nágrenni.
„Þetta eru sextán félagar í Myndlistarfélagi Árnessýslu, sem taka þátt og þetta er 41 mynd, þannig að þetta er bara virkilega stór og skemmtileg sýning. Fólk málar ýmist með olíu, akrýl, vatnslitum og blandaðri tækni, þannig að hér sjáum við mikinn fjölbreytileika,” segir Katrín Ósk Þráinsdóttir, varaformaður félagsins.
Þið eruð greinilega mjög öflugt myndlistarfélag?
„Já sérstaklega núna því við erum með verkefni í gangi. Við sóttum um styrk og fengum hann og eru núna með verkefni, sem heitir 44, erum með 40 viðburði á fjórum mánuðum og þetta er síðasti mánuðurinn, apríl, þannig að það er búið að vera nóg að gera,” segir Berglind Björgvinsdóttir, formaður félagsins.
Hvað er það við myndlistina sem er svona heillandi?
„Það er allt, bara fegurðin og gleðin, sem það gefur manni, heilun, bara nærandi fyrir sálina,” segja þær stöllur.

Sýningin stendur til annars júní næstkomandi og er opin á opnunartíma Skyrgerðarinnar frá 12:00 á hádegi til 21:00 á kvöldin alla daga vikunnar.
