Biðin eftir fyrsta leiknum á grasi lengist Sindri Sverrisson skrifar 16. apríl 2024 14:01 HK og ÍA spila bæði innanhúss í 3. umferð Bestu deildarinnar um helgina. vísir/Hulda Margrét Nú hafa allir þrír leikirnir sem til stóð að yrðu spilaðir á grasi, í 3. umferð Bestu deildar karla í fótbolta, verið færðir á gervigrasvelli. ÍA tekur á móti Fylki á sunnudaginn og nú hefur sú ákvörðun verið tekin að færa leikinn inn í Akraneshöllina. Sömuleiðis mæta Skagamenn liði Tindastóls í Akraneshöllinni, í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á fimmtudaginn í næstu viku. Þar með er áætlað að fyrsti leikurinn á ELKEM-vellinum á Akranesi verði 28. apríl þegar ÍA tekur á móti FH í Bestu deildinni í 4. umferðinni. Áður höfðu FH og HK víxlað á heimaleikjum þannig að þau mætast í Kórnum á laugardaginn, í stað þess að mætast á Kaplakrikavelli. Áætlað er að fyrsti heimaleikur FH verði því 4. maí, eða ekki fyrr en í 5. umferð. Leikirnir í 3. umferð Föstudagur 19. apríl: 19.15 Stjarnan - Valur, Samsungvellinum í Garðabæ Laugardagur 20. apríl: 14.00 HK - FH, Kórinn í Kópavogi 16.15 KR - Fram, AVIS-vellinum í Laugardal Sunnudagur 21. apríl: 14.00 KA - Vestri, Greifavellinum á Akureyri 17.00 ÍA - Fylkir, Akraneshöllin 19.15 Víkingur - Breiðablik, Víkingsvöllur Loks á KR heimaleik við Fram sem færi fram á Meistaravöllum ef veðurguðirnir hefðu verið fótboltafólki hliðhollari, en liðin mætast á AVIS-velli Þróttara í Laugardalnum á laugardaginn. Á þeim velli verður einnig fyrst „heimaleikur“ Vestra í efstu deild þegar liðið mætir HK í 4. umferð 28. apríl, en áætlað er að fyrsti leikurinn á nýjum heimavelli á Ísafirði verði ekki fyrr en í 7. umferð, þegar Víkingar koma í heimsókn. Samkvæmt plani er núna fyrsti leikurinn á grasvelli á milli KR og Breiðabliks 28. apríl, en það gæti vel átt eftir að breytast og biðin eftir fyrsta grasleiknum lengst fram í maí. Besta deild karla Mest lesið Sjáðu sigurmark Liverpool og pínleg mistök í München Fótbolti Bergrós efst Íslendinga eftir fyrstu viku CrossFit Open Sport Draumadagar Elínar Klöru sem fer í atvinnumennsku Handbolti Dómararnir á Spáni fá miklu betur borgað Fótbolti Utan vallar: Fegurðin í því að stúta og stela Fótbolti Sjáðu vörslurnar hjá Alisson: „Fáir sem stugga við honum“ Fótbolti „Keflavík reyndi að kaupa sér Íslandsmeistaratitilinn en þeir eru í tíunda sæti“ Körfubolti Einstakt mál í Frakklandi: Níu mánaða bann fyrir að ógna dómara Fótbolti Stelpurnar okkar aftur í hæstu hæðum Fótbolti „Við vorum mikið betri en Liverpool“ Fótbolti Fleiri fréttir QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Sjá meira
ÍA tekur á móti Fylki á sunnudaginn og nú hefur sú ákvörðun verið tekin að færa leikinn inn í Akraneshöllina. Sömuleiðis mæta Skagamenn liði Tindastóls í Akraneshöllinni, í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á fimmtudaginn í næstu viku. Þar með er áætlað að fyrsti leikurinn á ELKEM-vellinum á Akranesi verði 28. apríl þegar ÍA tekur á móti FH í Bestu deildinni í 4. umferðinni. Áður höfðu FH og HK víxlað á heimaleikjum þannig að þau mætast í Kórnum á laugardaginn, í stað þess að mætast á Kaplakrikavelli. Áætlað er að fyrsti heimaleikur FH verði því 4. maí, eða ekki fyrr en í 5. umferð. Leikirnir í 3. umferð Föstudagur 19. apríl: 19.15 Stjarnan - Valur, Samsungvellinum í Garðabæ Laugardagur 20. apríl: 14.00 HK - FH, Kórinn í Kópavogi 16.15 KR - Fram, AVIS-vellinum í Laugardal Sunnudagur 21. apríl: 14.00 KA - Vestri, Greifavellinum á Akureyri 17.00 ÍA - Fylkir, Akraneshöllin 19.15 Víkingur - Breiðablik, Víkingsvöllur Loks á KR heimaleik við Fram sem færi fram á Meistaravöllum ef veðurguðirnir hefðu verið fótboltafólki hliðhollari, en liðin mætast á AVIS-velli Þróttara í Laugardalnum á laugardaginn. Á þeim velli verður einnig fyrst „heimaleikur“ Vestra í efstu deild þegar liðið mætir HK í 4. umferð 28. apríl, en áætlað er að fyrsti leikurinn á nýjum heimavelli á Ísafirði verði ekki fyrr en í 7. umferð, þegar Víkingar koma í heimsókn. Samkvæmt plani er núna fyrsti leikurinn á grasvelli á milli KR og Breiðabliks 28. apríl, en það gæti vel átt eftir að breytast og biðin eftir fyrsta grasleiknum lengst fram í maí.
Leikirnir í 3. umferð Föstudagur 19. apríl: 19.15 Stjarnan - Valur, Samsungvellinum í Garðabæ Laugardagur 20. apríl: 14.00 HK - FH, Kórinn í Kópavogi 16.15 KR - Fram, AVIS-vellinum í Laugardal Sunnudagur 21. apríl: 14.00 KA - Vestri, Greifavellinum á Akureyri 17.00 ÍA - Fylkir, Akraneshöllin 19.15 Víkingur - Breiðablik, Víkingsvöllur
Besta deild karla Mest lesið Sjáðu sigurmark Liverpool og pínleg mistök í München Fótbolti Bergrós efst Íslendinga eftir fyrstu viku CrossFit Open Sport Draumadagar Elínar Klöru sem fer í atvinnumennsku Handbolti Dómararnir á Spáni fá miklu betur borgað Fótbolti Utan vallar: Fegurðin í því að stúta og stela Fótbolti Sjáðu vörslurnar hjá Alisson: „Fáir sem stugga við honum“ Fótbolti „Keflavík reyndi að kaupa sér Íslandsmeistaratitilinn en þeir eru í tíunda sæti“ Körfubolti Einstakt mál í Frakklandi: Níu mánaða bann fyrir að ógna dómara Fótbolti Stelpurnar okkar aftur í hæstu hæðum Fótbolti „Við vorum mikið betri en Liverpool“ Fótbolti Fleiri fréttir QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Sjá meira