Skoðun

Fé, fæða og fjármálaáætlun

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar

Málefni matvælaráðuneytisins bera oft á góma í samtölum fólks. Það er eðlilegt, á könnu ráðuneytisins eru fjöldi málaflokka sem varða okkar daglega líf, matinn sem við borðum, stórar atvinnugreinar og umhverfið í kringum okkur. Verkefnin framundan í matvælaráðuneytinu byggja á markvissri stefnumótun síðustu ára. Mikil áhersla hefur verið lögð á að skapa langtímasýn í kjarnagreinum matvælaframleiðslu, þar tek ég við góðu búi.

Sækjum fram í landbúnaði

Í landbúnaði er stefnt að því að efla enn frekar fæðuöryggi, heilnæmi matvöru og velferð dýra. Við erum að auka fjármagn til að efla kornrækt samkvæmt aðgerðaáætlun, um 2 milljarðar á gildistíma áætlunarinnar. Áfram verður unnið að aðgerðum til innleiðingar verndandi arfgerða í íslenska sauðfjárstofninum sem hafa þegar verið fjármagnaðar. Það er mikið kappsmál fyrir okkur öll að þau áform gangi sem best og að við ráðum niðurlögum riðu. Miklum fjármunum hefur verið varið í niðurskurð á sauðfé vegna riðusmita, þá eru ótalin þau skelfilegu félagslegu áhrif sem hún hefur haft á bændur.

Gert er ráð fyrir auknum fjárheimildum til lofts¬lagsaðgerða í landbúnaði en loftlagsbreytingar af mannavöldum eru ein helsta áskorunin í matvælaframleiðslu. Unnið hefur verið að endurskoðun aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum sem matvælaráðuneytið tók virkan þátt í og leiddi endurskoðun aðgerða vegna landbúnaðar og landnotkunar sem og mótun aðgerða vegna haftengdrar starfsemi.

Hafið bláa hafið

Öflugar hafrannsóknir eru grunnur að því að hér takist að halda úti skilvirkum veiðum og lágmarka þannig losun vegna þeirrar starfsemi. Hafrannsóknir skipta einnig sköpum í lagareldi. En flestum er kunnugt um strok, sjúkdóma og sníkjudýr sem hafa plagað greinina. Það liggur því augum uppi mikilvægi þess að styrkja umgjörð og eftirlit greinarinnar svo að hún hafi tækifæri til að vaxa á sjálfbæran hátt. Í fjármálaáætlun er tryggt fjármagn til Hafrannsóknarstofnunar til rannsókna og vöktunar sem er afar brýnt. Alþingi hefur auk þess tryggt aukna fjárveitingu til rannsókna á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis. Aukið eftirlit er mikilvægur þáttur í þeim breytingum sem við viljum sjá í greininni. Mannleg mistök eru megin ástæða stroks og er skýrt kveðið á um hert eftirlit og viðurlög við því í frumvarpinu.

Þetta tel ég vera mikilvæga þætti í því að treysta sjálfbærni matvælaframleiðslu. Auk þess að skapa kjarnagreinum matvælaframleiðslu skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Þannig sköpum við farsælli framtíð fyrir okkur öll.

Höfundur er matvælaráðherra.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×