Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. apríl 2024 11:30 Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea, kvartar eftir jafnteflið við Aston Villa. getty/James Baylis Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að notkun myndbandsdómgæslu (VAR) skaði ímynd enska boltans.
Chelsea lenti 2-0 undir gegn Aston Villa í síðasta leik gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni. En Bláliðar jöfnuðu með mörkum Nonis Madueke og Conors Gallagher. Axel Disasi skoraði svo fyrir Chelsea í uppbótartíma en markið var dæmt af eftir skoðun á myndbandi. Pochettino og hans menn voru æfir eftir leik og mótmæltu harðlega. Pochettino var svo ekki runnin reiðin þegar hann mætti í viðtal skömmu síðar. „Allir sem horfðu á þennan leik eru vonsviknir. Dómarinn sagði að þetta væri brot, dæmdi markið af og skoðaði það svo á myndbandi. Dómarinn er ótrúlegur og þetta er fáránlegt,“ sagði Pochettino. „Það er erfitt að sætta sig við þetta. Í leiknum gegn Manchester City í undanúrslitum bikarkeppninnar áttum við að fá vítaspyrnu vegna hendi en það var ekki skoðað. Það er sárt að þetta sé að skaða ímynd enska boltans. Ég held að Villa-menn og stuðningsmenn þeirra hafi ekki skilið af hverju markið var dæmt af. Ef öll svona atvik væru skoðuð myndum við ekki enda með ellefu leikmenn inni á vellinum. Við getum talað um frammistöðuna eða ákvörðunina. Þetta er að skemma leikinn.“ Chelsea er í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 48 stig.
Enski boltinn Mest lesið Hákon um markið: Hann sá mig ekki en heyrði í mér Fótbolti Hvetja stuðningsfólk Man. Utd til að mæta í svörtu því félagið sé „að deyja“ Enski boltinn Hákon tryggði Lille jafntefli á Westfalenstadion Fótbolti Declan Rice eftir sjö marka kvöld: Höfum verið að spila svona allt tímabilið Fótbolti Benoný Breki áfram á skotskónum Enski boltinn Brahim Diaz tryggði Real Madrid sigur á nágrönnunum Fótbolti Arsenal menn í miklu markastuði í Hollandi Fótbolti „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Enski boltinn „Ég var heitur og þegar maður er heitur á maður að negla á markið“ Handbolti Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Fleiri fréttir Hvetja stuðningsfólk Man. Utd til að mæta í svörtu því félagið sé „að deyja“ Benoný Breki áfram á skotskónum „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Nottingham Forest vann aftur eftir vítakeppni Man. United má ekki nota unga framherjann sinn í Evrópudeildinni Amorim: „Ég er ekki barnalegur“ Kvartar undan boltanum eftir tuttugu skot framhjá Draumaprinsinn Benoný: „Kannski sá besti hérna í að klára færin“ Stefán Teitur og félagar mæta Aston Villa Hamrarnir hentu frá sér tveggja marka forystu gegn Arsenal Chelsea tapaði óvænt stigum á meðan Hlín tapaði fyrir Rauðu djöflunum Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Welbeck skaut Brighton áfram Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Mateta líður vel þrátt fyrir tæklingu í andlitið Man City sterkari í síðari hálfleik og komið áfram Fyrrverandi markvörður Hattar lagði upp mark í toppslagnum Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Hefur Amorim bætt Man United? Asensio skaut Villa áfram Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Sjá meira