Litlu mátti muna að illa færi þegar sinueldur kviknaði út frá neista frá framkvæmdum við sumarbústað í Munaðarnesi í vikunni. Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins þar áður en hann náði að læsa sig í bústaði.
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Árnessýslu, segir að sitt lið hafi farið í nokkur útköll af þessu tagi þar sem fólk hefur brennt garðaúrgangi eða timburafgöngum úti í sveit þrátt fyrir mikla þurrkatíð og komið af stað heilmiklum sinubruna.
„Þetta persónulega finnst mér alveg óskiljanlegt að menn skuli ekki geta beðið fram að vætutíma með þetta,“ sagði Pétur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Hann tók fram að hann ætti ekki við brunann í Munaðarnesi þar sem óhöpp af því tagi þar sem fólk gleymir sér í framkvæmdagleði séu vel skiljanleg. Ábyrgðin sé þó alltaf á þeim sem kveikja í.
„Þá þarf að horfa á það hvernig við getum fælt fólk frá þessu. Það virðist bara oft og tíðum ekki hægt að höfða til almennrar skynsemi,“ sagði slökkviliðsstjórinn.
Þurfa að kalla út hlutastarfsmenn
Í því samhengi benti Pétur á að heimild sé í lögum fyrir því að slökkvilið rukki geranda fyrir útkalli. Hans lið hafi gert það. Kostnaðurinn fari eftir því hversu stórt útkallið sé.
„Hreinn launakostnaður við eitt svona sinubrunaútkall getur verið á bilinu hálf til ein milljón,“ sagði Pétur.
Aðeins örfá slökkvilið á á landinu séu með menn í fullri vinnu, önnur hafi aðeins yfir hlutastarfsmönnum að ráða. Þeir fái alltaf greitt fyrir að minnsta kosti fjóra tíma í hlutastarfi jafnvel þó að það taki mun skemmri tíma að slökkva eld.
Dauðans alvara
Sumarhúsabyggðir hafa nokkrum sinnum verið í hættu vegna sinuelda og sagði Pétur það í raun heppni að heilu hverfin hafi ekki orðið eldi að bráð ennþá í ljósi þess hve kjarr og gróður sé orðinn útbreiddur.
„Það hefur ekki gerst ennþá sem betur fer, en það mun einhvern tímann gerast. Það hefur gerst alls staðar í heiminum að við höfum misst hús og jafnvel mannslíf. Þetta er alveg dauðans alvara,“ sagði slökkviliðsstjórinn.
Til þess að fyrirbyggja sinubruna nefndi Pétur að skynsamlegt væri að bleyta jörðina fyrir framkvæmdir sem geta myndað neista til þess að minnka íkveikjuhættu. Einnig sé skynsamlegt að bleyta eftir á þar sem glóð geti lifað lengi.
Eins sé gott að hafa vatn við höndina, jafnvel þó að það sé ekki meira en tveggja lítra gosflaska fyllt vatni. Mögulegt sé að stöðva eld ef gripið er inn í nógu snemma en annars sé hætta á að hann verði óviðráðanlegur á örskotsstundu.
„Við getum auðvitað aldrei fyrirbyggt öll slys en óábyrga hegðun getum við fyrirbyggt,“ sagði Pétur.