Skoðun

Málfarslöggan verk sín vann

Ari Páll Kristinsson skrifar

Málfarslöggan verk sín vann

með vísdómi og mildi.

En ráðgjöfinni ráðherrann

ráða sjálfur vildi.

Nú hefur menningarmálaráðherrann boðað komu sína í RÚV. Látið er í það skína að erindið sé nánast að sitja fræðslufund eða fara í starfskynningu hjá málfarsráðgjöfunum, en sá ásetningur að finna að málnotkun starfsmanna RÚV er illa dulbúinn. Gesturinn er æðsti ráðamaður landsins í málefnum tungu og fjölmiðla.

Áður en hún byrjar að leiðrétta texta starfsfólksins verður vonandi tími til að renna yfir skjalið „Íslensk málstefna 2021-2030“ sem stjórn Íslenskrar málnefndar hefur birt og staðfest. Þar er í lið 1 m.a. boðað „að íslenska sé löguð meðvitað og skipulega að nýjum aðstæðum sem hefur í för með sér að viðmið um það sem telst gott mál eða málstaðall hlýtur að taka breytingum“, og í lið 2 „að bera virðingu fyrir málnotkun allra sem tala íslensku og gæta þess að málnotkun sé ekki útilokandi“. Í lið 7 er fjallað sérstaklega um fjölmiðla og um þá segir: „Þar eru óþrjótandi tækifæri til nýsköpunar í máli og tilbrigða í málsniði og stíl.“ Ráðherrann skipaði málnefndina sjálf (formanninn og varaformanninn án tilnefningar) og stendur væntanlega með henni.

Ég hef gegnum tíðina sinnt málfarsráðgjöf og sent frá mér leiðbeiningar og fróðleik um mál og málnotkun. Eins og fleiri hef ég stundum verið uppnefndur málfarslögga í græskulausu gamni. En heldur fer gamanið að kárna ef löggu-parturinn í orðinu hættir að vera saklaus líking og fjölmiðlamenn og textasmiði fer að gruna að kylfa og rafbyssa leynist bak við brosið. Leiðin er ekki alltaf löng yfir í Tyrkland Atatürks fyrir tæpri öld þegar skipt var yfir í latneska letrið úr hinu arabíska með hótunum um lokun prentsmiðja, sektir og varðhald.

Að vanda byrjaði ég daginn á að renna í flýti yfir fréttamiðlana. Þar rakst ég á eignarfallsmyndina „forystusauðs“ og að einhver „breytti um skoðun“. Sjálfum hefði mér fallið betur að sjá eignarfallið „sauðar“ og orðalagið „skipta um skoðun“ – en þarna eins og svo víða er breytileiki í íslensku og hægt að velja milli mismunandi leiða til að tjá sig. Það verður nóg að gera hjá íslenskuráðherranum að samræma allt slíkt.

Heyrst hafði að þyrla Gæslunnar flygi stundum hátt, stundum lágt, og ýmist hratt eða hægt. Vitaskuld ætlaði dómsmálaráðherrann ekki að una við þetta og boðaði komu sína í næsta útkall til að fara yfir það með flugmönnnunum að fljúga skyldi í sömu hæð og á sama hraða á hverju sem dyndi. Eða hvað?

Höfundur er rannsóknarprófessor hjá Árnastofnun. Var fyrrum forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar (1996-2006) og málfarsráðunautur RÚV (1993-1996).




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×