Hér má sjá myndbandið sem Sigga Ózk kallar „Visualizer“:
„Þess virði að bíða eftir hinum rétta“
Að sögn Siggu samdi hún lagið áður en hún kynntist kærastanum sínum.
„Þetta mega gellu popplag er samið á tíma sem ég var ein, vildi setja alla mína orku í sjálfa mig og ekki sætta mig við eitthvað sem lætur mér ekki líða vel. Við stelpur erum svo magnaðar, við eigum skilið að vita það og varðveita okkur sjálfar.
Við þurfum ekki að sætta okkur við þann fyrsta sem gefur okkur athygli heldur er það þess virði að bíða eftir hinum rétta.
Það þarf að segja BOY BYE við þá röngu til þess að geta sagt Boy HÆ við þann rétta.“

Kynntist kærastanum daginn eftir
Þessi lífsspeki átti svo sannarlega eftir að nýtast Siggu Ózk vel.
„Svolítið fyndið, daginn eftir að ég sem lagið hitti ég kærastann minn sem ég er enn með í dag. Þannig þetta lag er bæði stelpukrafts (e. girlpower) lag og ástar-manifestation lag.
Margir eru búnir að spyrja hvort við séum hætt saman út af þessu lagi en svo er ekki,“ áréttar Sigga Ózk.
Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá Siggu Ózk, sem er stöðugt að og í óðaönn að vinna að nýju efni.
„Ég er á leiðinni til London að sjá söngleiki og svo er ég farin til Grikklands í frí. Ég er að sömuleiðis skrifa plötu sem kemur út á þessu ári í samstarfi með Þormóði.“
Næstu gigg hjá Siggu eru svo á 17. júní þar sem hún kemur bæði fram í Hafnarfirði og í Garðabæ. Hún hefur komið fram á hinum ýmsu hátíðum, vakið athygli í Söngvakeppninni og sankað að sér mikilli reynslu.
„Lærdómsríkasta verkefnið hingað til hefur verið að læra að tileinka sér þolinmæði og traust. Að hafa þolinmæði á meðan maður vinnur hart að draumunum sínum og að treysta, bæði á sjálfa þig og að heimurinn gefi þér plássið sem þú átt skilið á þeim tíma sem þú ert tilbúin.“
Hún sækir innblásturinn víða og segist fá mikinn innblástur úr því að opna sig og hleypa lífinu inn.
„Að opna á hamingjuna, opna á sköpunargleðina og sjá hvað ég kem með ef ég byrja bara. Ekki fara of mikið að ofhugsa málin heldur bara byrja, það kemur eitthvað gott að lokum.“
Draumaverkefnið að verða móðir
Aðspurð hvort hún hafi einhvern tíma misst trúna á sjálfri sér segir Sigga Ózk:
„Þegar að ég lendi í dimmum tímum finnst mér best að hitta fólk sem ég veit að segir mér satt. Stundum þarf maður að heyra hlutina frá einhverjum öðrum. En yfirleitt er langbest að bara finna þakklætið, skrifa niður hvað ég er þakklát fyrir, hverju ég er spennt fyrir, hvað mig langar að gera og hvernig ég get gert það.
Síðan bara fara að hreyfa sig með peppandi tónlist og hugsa um alla æðislegu hlutina sem þú ætlar að gera og sem þú átt nú þegar.“
Að lokum segist hún ekki vera með eitthvað afmarkað draumaverkefni heldur langi hana alltaf að vera með nokkur spil á hendi.
„Að vera á tónleikaferðalagi um heiminn, að taka upp sjónvarpsefni, að semja lög á milli stunda og æfa fyrir þessi risa show á mínu eigin heimstónleikaferðalagi. En burt sé frá tónlistinni er auðvitað draumaverkefnið að vera móðir.“
Tónlistarmyndbandið er framleitt af Verbúð 53 og Siggu Ózk. Sigfús Jóhann Árnason leikstýrði og Theodóra Gyrðis hannaði fötin, Lauren Vũ stíliseraði og Glam Reykjavík sá um hárið.
Hér má hlusta á Siggu Ózk á streymisveitunni Spotify.