Þetta verður í síðasta sinn sem Bessastaðir eru opnir almenningi í tíð Guðna, en hann lætur af embætti 1. ágúst næstkomandi. Síðan hann tók við embættinu árið 2016 hefur opið hús á Bessastöðum orðið að reglulegum viðburði, tvisvar til þrisvar á ári.
„Bessastaðir eiga sér merka sögu. Auk Bessastaðastofu, sem byggð var á 18. öld, munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins sem eru síðari tíma viðbygginga,“ segir í tilkynningu frá embættinu.
Í húsinu má meðal annars sjá úrval myndlistar eftir íslenska listamenn og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins.

„Þá verða til sýnis dæmi um mannvistarleifar sem fundist hafa við fornleifarannsóknir og veita innsýn í búsetu á Bessastöðum allt frá landnámstíð. Að þessu sinni verður Bessastaðakirkja lokuð vegna framkvæmda og fornleifauppgraftar. Eins verður fornleifakjallarinn lokaður.“
Í hlaði Bessastaðastofu verður fyrsti forsetabíllinn, Packard bifreið Sveins Björnssonar, til sýnis en bifreiðin er árgerð 1942. Ef veður leyfir hyggst einnig Kór Vídalínskirkju syngja lag til heiðurs forseta þegar húsið verður opnað gestum kl. 13:00.
Starfsmenn embættis forseta og aðstoðarmenn veita upplýsingar um staðinn og verða gestum til aðstoðar.