Real love er nýjasta lag Silju Rósar sem er tileinkað LA þar sem Silja Rós var búsett og hugsar hún hlýtt til Íslendingasamfélagsins þar. Hér má hlusta á lagið:
Það leynist ýmislegt í töskunni hjá Silju Rós sem er almennt mikil bakpokakona.

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?
Taskan mín er yfirleitt full af öllu sem ég gæti mögulega þurft yfir daginn. Ég er oftast með meira en ég þarf í töskunni minni, til öryggis.
Ég er alltaf með símann minn, airpods og reyni að muna eftir lyklunum mínum.
Annars er ég yfirleitt með tölvuna mína, hleðslutæki, penna, dagbók, lagasmíða bók þar sem ég skrifa niður nýjar hugmyndir af lagatextum og hljómum, góða bók að lesa (þessa dagana er það Meditations eftir Marcus Aurelius), greiðu, hárteyju, ilmvatn, blue lagoon varasalva, snyrtitösku, spritt, sólgleraugu og ég reyni mitt allra besta að muna eftir lyklunum mínum og astmapústinu mínu.
Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?
Já, það leynist yfirleitt einhver orkusteinn í töskunni minni. Oftast verður þessi amethyst fyrir valinu en ég hef átt hann í 25 ár og mér þykir mjög vænt um hann.

Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?
Það eina sem ég man alltaf eftir að taka með mér er síminn minn. Ég er mjög góð í að gleyma og týna hlutum. Og stundum týnast hlutirnir mínir í töskunni minni því það kemst svo mikið fyrir í henni.

Hver er þín uppáhalds taska og afhverju?
Filson bakpokinn minn, hann er svo fallegur og þægilegur á sama tíma. Ég fékk hann í jólagjöf frá unnusta mínum fyrir nokkrum árum síðan og hef verið með hann á hverjum degi síðan. Það er ótrúlegt hvað það kemst mikið fyrir í þessari tösku og hún endist mjög vel. Mér finnst miklu þægilegra að vera með bakpoka heldur en stóra hliðartösku því þá leggst þunginn ekki bara á aðra öxlina.

Bakpokinn er líka hin fullkomna ferðataska því hún smellpassar undir flugvélasæti þegar hún er full. Mér finnst best að ferðast létt erlendis og þá gríp ég oftast bara þennan bakpoka með mér og lítið ferðaveski sem tengdamamma gaf mér.
Þegar ég er með litla hliðartösku þá vel ég yfirleitt á milli Michael Kors töskunnar minnar eða hliðartösku frá Oliver Bonas sem ég skipti reglulega um ól á. Fékk þær báðar í gjöf frá mömmu.

Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?
Ég nota Filson töskuna mína á hverjum degi þannig ég tek reglulega til í henni svo hún verði ekki of þung. Ég neyðist líka oft til þess að taka til í henni þegar ég týni einhverju.
Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?
Áður en ég fékk bakpokann minn var ég týpan sem var alltaf með 3 - 4 töskur á mér, þannig hann hefur gert lífið mitt mun þægilegra. Það er hægt að troða svo miklu í hann að ég kemst yfirleitt upp með það að vera bara með bakpokann minn. Ef ég þarf á fleiri töskum að halda yfir daginn t.d. ræktartösku, sundtösku eða litlu veski þá get ég geymt þær í bakpokanum.

Stór eða lítil taska og afhverju?
Stór taska, ég á það til að þéttbóka mig yfir daginn og þá er gott að vera með allt sem ég gæti mögulega þurft með mér. En ef ég er að fara eitthvað út þá gríp ég lítið veski fyrir símann minn, lyklana (ef ég man eftir þeim), ilmvatn, greiðu og gloss.
Hér má hlusta á Silju Rós á streymisveitunni Spotify.