XXX Rottweiler stútfylltu Laugardalshöllina í maí síðastliðnum þegar þeir héldu risatónleika. Tónleikarnir fóru fram úr björtustu vonum og var stemmingin engri lík eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.
Nú ætla strákarnir að endurtaka leikinn og það á Akureyri þann 30. ágúst.
„Þetta er í rauninni fyrsta sinn sem við erum sjálfir að halda tónleika en ekki bara spila á giggum sem við erum bókaðir á. Þannig að við vildum fara all-in, hafa þetta á sama skala og Up In Smoke Tour og þetta bandaríska stöff sem maður dýrkaði þegar maður var unglingur. Hafa alvöru sviðsmynd, hafa alvöru show,“ segir Bent í samtali við Vísi.
Tónleikarnir fara fram í íþróttahöllinni á Akureyri og því má búast við svipaðri stemmingu og í maí. Þeir ætla að tjalda öllu til. Það vakti mikla athygli á tónleikunum í Laugardalshöllinni að búið var að smíða eftirlíkingu af barnum á Prikinu. Bent segir að sjálfsögðu fylgi barinn norður í land.
„Prikið hefur náttúrulega alltaf verið ákveðinn samnefnari fyrir hiphop á Íslandi og staðurinn þar sem ég drakk í mig kjarkinn sem ég er ennþá fullur af. Þó ég sé löngu hættur að drekka,“ segir hann.
Erpur Eyvindarson, betur þekktur sem Blaz Roca, er fullur tilhlökkunar og segir í samtali við Vísi að Reykjavík sé brunarúst eftir „snarhalaða og sögulega afmælistónleika XXX Rottweilerhunda í mökkstappaðri Laugardalshöll,“ eins og hann orðar það.
„Höfuðborg Norðurlands þarf líka sitt Prik, svo Rottweiler-rútan neglir nú norður og niður til að fýra upp í þessu festivali ásamt hiphopp-meistaraflokki Norðurlands. Með bjór í belgnum, bassa í botni, bossa í lofti; ballið aldrei búið,“ segir Erpur Eyvindarson, betur þekktur sem BlazRoca, í samtali við Vísi.
Eins og áður segir þá fara tónleikarnir fram í Íþróttahöllinni á Akureyri þann 30. ágúst.
„Ég veit að fólk mun koma allstaðar að á þessa tónleika. Það er líka Akureyrarvaka þessa helgi þannig að það er eiginlega bara rugl að fara ekki norður,“ segir Bent.
Nálgast má miða á tónleikana hér.