Reeves hefur setið á breska þinginu frá árinu 2010 en fyrir það starfaði hún sem hagfræðingur, bæði hjá Englandsbanka og Halifax Bank of Scotland. Hún gekk í Verkamannaflokkinn sautján ára gömul og lærði heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði í Oxford háskóla.
Í jómfrúrræðu sinni á breska þinginu árið 2010 hét Reeves að berjast fyrir atvinnuöryggi, hagvexti og velmegun.
Reeves birti færslu á X í dag þar sem hún sagði heiður lífs síns að vera skipuð fjármálaráðherra. „Hagvöxtur var ætlunarverk Verkamannaflokksins. Nú er hann ætlunarverk þjóðarinnar. Förum að vinna,“ segir í færslu Reeves.
It is the honour of my life to have been appointed Chancellor of the Exchequer.
— Rachel Reeves (@RachelReevesMP) July 5, 2024
Economic growth was the Labour Party’s mission. It is now a national mission.
Let’s get to work. pic.twitter.com/PchJFePDJa