Flugmálafélag Íslands stendur fyrir komu loftbelgsins í samvinnu við Icelandair, bílaleiguna Hertz og Hótel Rangá. Hann kemur frá fyrirtækinu H2 Ballooning sem þýskir atvinnumenn á sviði loftbelgjaflugs reka.
Flughátíðin Allt sem flýgur er árleg hátíð einkaflugmanna en öllum frjálst að mæta og er aðgangur ókeypis. Samkoman nær hápunkti með flugsýningu eftir hádegi á laugardag þar sem karmellukastið þykir sérlega vinsælt meðal krakkanna. Á föstudagskvöld verða lendingarkeppni og listflugsmót.
Samhliða stendur yfir Íslandsmót í flugi. Flugkeppnin hefst í dag, þriðjudag, og stendur fram á fimmtudag, en keppt er í nokkrum mismunandi þrautum.
Nú erum við bara á leið í flugferð. Okkur mun reka til norðausturs því þar er suðvestan gjóla. Ég held að við séum að stefna í átt að Heklu eða inn að hálendi,“ segir Kristján Már þegar loftbelgurinn tekur á loft.
„Ég vona að við förum ekki of langt í þessum vindi,“ bætir Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands, við.
Undir lok fréttatímans var aftur kíkt á Kristján Má og félaga en þá hafði þá rekið hátt upp í loft.