Í tengslum við Landsmót hestamanna á dögunum í Víðidal í Reykjavík þá var opið hús í Kjarri Þar, sem hægt var að koma í heimsókn í hesthúsið og hitta nokkra af hestunum og ábúendur. Mesta athygli eins og svo oft áður vakti stóðhesturinn Stáli, gamli höfðinginn, sem er orðinn 26 vetra. Ræktendur og eigendur Stála eru þau Helgi Eggertsson og Helga Ragna Pálsdóttir. Stáli á rúmlega 900 afkvæmi víða um land.
„Hann er bara að njóta lífsins hér úti sumarsins gamli karlinn. Hann er í fínasta standi, feitur og flottur og fyljar merar á fullu,” segir Ragna Helgadóttir, heimasætan í Kjarri.
Og þekkir hann öll folöldin sín?
„Það hlítur að vera, hann er alveg bráðgáfaður,” segir Ragna skellihlæjandi.
Stáli sló algjörlega í gegn á Landsmóti á Vindheimamelum 2006 og stóð þar efstur í flokki stóðhesta 7. vetra og eldri þar sem knapi var Daníel Jónsson. Stáli hlaut þar í aðaleinkunn 8,76 og setti þar með heimsmet. Hann fékk 8,26 fyrir byggingu og fyrir hæfileika fékk hann 9,09, þar af 9,5 fyrir skeið, vilja og geðslag og fegurð í reið.

„Stáli er mjög sérstakur karakter, hann er mjög stoltur hestur, hann gerir mannamun. Hann er langbestur við pabba og á það til að stríða mér stundum en ég held að það lýsi honum best, hann er ofboðslega stoltur og tryggur hestur,” bætir Ragna við.

En hvað er frægasta afkvæmið hans?
„Það eru Álfaklettur frá Syðri Gegnishólum og Sindri frá Hjarðartúni, báðir alveg magnaðir hestar.”
