„Jújú apríl og maí sérstaklega voru verulega undir væntingum, og júní að vissu leyti líka þó það sé misjafnt eftir landshlutum. En klárlega undir áætlunum,“ segir Kristófer. Hann vonar að það rætist úr þessu og staðan lagist þegar líður á haustið.
Nokkur munur er milli landshluta, en mesti samdrátturinn hefur verið á Austurlandi og Norðurlandi. Á Vestfjörðum hefur verið fjölgun í komu skemmtiferðaskipa.
„Vestfirðir eru mikið skipakomusvæði orðið, og hluti af Norðurlandinu líka. Það hefur verið aukning í skipakomum, en við erum náttúrulega fyrst og fremst að horfa á hótelgistinguna sem við viljum að sé byggð upp,“ segir Kristófer.
Að þeirra mati sé það besta stefnan fyrir landsbyggðina, að byggja upp sjálfbæra gistiþjónustu í landi.
„Ekkert gríðarlegt hrun“
„Jájá við megum ekki gleyma því að það er ekkert gríðarlegt hrun, kannski síst á Suðurlandi, þótt það sé undir væntingum. Ég held það séu frekar þeir landshlutar sem eru lengra í burtu sem hafa fundið fyrir þessu. Suðurlandi er og verður eftirsóknarverður staður, og höfuðborgarsvæðið og Suðurnesin líka,“ segir Kristófer.
Kristófer segir að hótelbransinn á Íslandi búi við miklar skattahækkanir og launahækkanir, og afleiðingin sé sú að gríðarlega dýrt sé að gista á hótelum. Aðrir aðilar eins og Airbnb íbúðir og skipagistingar hafi skattalegt forskot umfram hótelin.
Airbnb herbergin miklu fleiri en hótelherbergi
„Svo má ekki gleyma því að til dæmis hérna á höfuðborgarsvæðinu, eru Airbnb herbergi miklu fleiri en hótelherbergi yfir sumarið. Meðan að við erum með 5500 hótelherbergi, eru kannski átta til níu þúsund Airbnb herbergi í boði,“ segir Kristófer.
Um áramótin var gistiskattur, sem lagður var af á Covid-árunum lagður aftur á og tvöfaldaður. „Við finnum verulega fyrir því þegar dregur saman. Við hefðum kannski sirka þurft að sleppa við gistináttaskattinn til að halda í horfurnar,“ segir Kristófer.
Hann segir að á stöðum þar sem ferðamannavertíðin er aðallega á sumrin, eins og á Austfjörðum, hafi það veruleg áhrif ef fyrri hluti sumarsins bregst. „Við vitum náttúrulega ekki núna hvort það rætist úr þessu, en það gerir það vonandi,“ segir Kristófer.