Skoðun

466 milljarðir í vasa norskra eldisrisa

Gunnlaugur Stefánsson skrifar

Norska Fiskeribladet upplýsti í frétt 5. júlí s.l. að Eldisjöfarm í Sortland í Noregi hafi borgað 905.9 milljónir norskra króna fyrir 2770 tonna opið sjókvíaeldisleyfi á opinberu uppboði í Noregi. Það er um 4.4 milljónir íslenskra króna fyrir hver framleitt tonn. Nú hefur íslenska ríkið úthlutað norsku eldisfyrirtækjunum leyfum til að framleiða 106 þúsund tonn á ári í fjörðum landsins.

Samkvæmt norsku markaðsverði þá jafngildir það 466 milljörðum króna.

Þessi verðmyndun í Noregi á sér stað þrátt fyrir gildistöku nýs 20 prósenta grunnrentuskatts á öll sjókvíaeldisfyrirtæki í Noregi. Engri slíkri gjaldtöku er til að dreifa á Íslandi, aðeins táknræn greiðsla á afar lágu framleiðslugjaldi sem verður að agnarbroti í samanburði við opinberar gjaldtökur í Noregi.

Það er vægt til orða tekið að kalla þetta dekur við auðmjúka gjafmildi í þágu norskra eldisrisa. Þrátt fyrir afar brösótt gengi í opna eldinu síðustu ár, þar sem hvert áfallið af öðru hefur gengið yfir, slysasleppingar, sjúkdómar, lús, sjávarkuldi og vaxandi erfðablöndum við villtan lax, þá eru í raun aðeins ein föst verðmæti í íslenska eldisbransanum. Framleiðsluleyfin, kvótinn sem íslenskir stjórnmálamenn hafa gefið norsku eldisiðjunni til að braska með og skilað mörgum milljörðum króna í vasa útvalinna manna.

Svo lagði matvælaráðherra fram frumvarp á Alþingi í umboði ríkisstjórnarinnar sem boðaði að þessi opna eldisiðja með norskan lax eigi að vaxa og dafna í landinu, halda eigi áfram að úthluta leyfum á silfurfati og helst til eilífðar og allar hindranir afnumdar sem gætu truflað innbyrðis viðskipti svo braska megi áfram með íslenska eldiskvótann.

Á sama tíma segja ýmsir norskir eldisfurstar í sínum ranni, að opið sjókvíaeldi heyri sögunni til í Noregi fyrir 2030. Hrikaleg staða í mörgum norskum laxveiðiám, þar sem veiðar hafa m.a. verið bannaðar, hefur enn frekar þrýst á það.

Hvergi í veröldinni hefur tekist að reka opið sjókvíaeldi án skelfilegra afleiðinga fyrir lífríkið. Fullreynt er, að engar mótvægisaðgerðir eru til sem koma í veg fyrir það eins og reynslan hér á landi staðfestir.

Er ekki mál að linni? Hvað þarf spillingin í kringum þessa opnu eldisiðju að rista djúpt og eyðleggja mikið áður en íslenskir stjórnmálamenn vakna og segja: Nú er nóg komið.

Matvælaráðherra var gerður afturreka með eldisfrumvarpið sitt á Alþingi nú í vor og þrátt fyrir að tveir forsætisráðherrar hefðu lýst yfir að væri forgangsmál. Þá vaknaði á Alþingi von, mörgum óbreyttum þingmönnum var misboðið. Hingað og ekki lengra.

Nú þarf að einhenda sér í að marka ábyrga viðbragðsáætlun til að standa vörð um búsetu og heilbrigt atvinnulíf í eldisbyggðunum þegar opna eldinu verður hætt sem hlýtur að verða innan tíðar.

Höfundur er fyrrverandi sóknarprestur, fyrrverandi alþingismaður og formaður Náttúruverndarfélagsins Laxinn lifi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×