Skoðun

Lítil grein um stóran sátt­mála

Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Í dag var undirritað samkomulag ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um uppfærðan samgöngusáttmála. Með þessari undirritun er staðfest sú framtíðarsýn sem birtist í samgöngusáttmálanum sem ég hafði sem samgönguráðherra forystu um árið 2019 og hjó á harðan hnút í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Á þeim árum sem eru liðin frá undirritun sáttmálans hefur nauðsyn hans verið staðfest: Íbúum hefur fjölgað um 21 þúsund og bifreiðum um tæplega 16 þúsund. Það er ljóst nú og hefur lengi verið ljóst að samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu verða að þróast í samspili stofnvegaframkvæmda, öflugra almenningssamgangna og göngu- og hjólastíga.

Aukin lífsgæði

Samgöngur eru lífæð landsins. Mikilvægt er að þær séu greiðar og að allar aðgerðir feli í sér aukið öryggi. Samgöngusáttmálinn er eins og fyrr sagði samspil mannvirkja fyrir fjölskyldubílinn, almenningssamgöngur og virkra ferðamáta. Hann felur í sér að fólk getur valið sér ferðamáta. Aukin tíðni í almenningssamgöngum á eftir að einfalda líf íbúa svæðisins og gera fjölskyldum kleift að minnka kostnað sinn þegar kemur að fjölda bíla á heimili. Höfuðborgarsvæðið verður þegar framkvæmdum sáttmálans lýkur, líkara þeim borgarsvæðum sem við þekkjum í Evrópu þar sem almenningssamgöngur eru öflugar. Það þýðir með öðrum orðum að samkeppnishæfni höfuðborgarsvæðisins eykst. Því ekki geta það talist dýrmæt lífsgæði að eyða tíma sínum í umferðarteppum.

Meiri framkvæmdir – meiri kostnaður

Frá því samgöngusáttmálinn var undirritaður árið 2019 hefur heildarkostnaður við verkefnin sem innan hans eru hækkað. Ástæða hækkunarinnar er fyrst og fremst fólgin í því að bæst hafa við stórar og kostnaðarsamar framkvæmdir á borð við göng frá Grensásvegi að Vatnsmýri og stokkur á Sæbraut í stað mislægra gatnamóta. Líkt og í öðrum vegaframkvæmdum á landinu hefur vísitala framkvæmda hækkað mikið á síðustu árum. Það gildir einnig innan höfuðborgarsvæðisins.

Ekkert Hókus pókus!

Óskhyggja dugar skammt þegar kemur að samgöngum. Lögmál veruleikans hverfa ekki sama hversu oft menn hrópa hókus pókus. Samgöngur eru einn af grunnþáttum í uppbyggingu samfélaga. Uppbygging samgangna snýr að því að uppfylla þarfir samfélagsins, ekki aðeins í dag heldur einnig og ekki síst fyrir komandi kynslóðir. Samgöngur og skipulag byggðar snýst um að auka lífsgæði borgaranna. Staðreyndin er sú að án öflugra almenningssamgangna mun alltaf þrengjast meira og meira að fjölskyldubílnum nema sífellt stærri hluti af flatarmáli höfuðborgarsvæðisins fari undir sífellt fleiri akreinar og bílastæði. Ég leyfi mér að efast um að það sé vilji íbúa höfuðborgarsvæðisins.

Raunsæi kallar á hugrekki

Stundum er það svo að stór verkefni sem taka áratugi í framkvæmd, líkt og raunin er þegar kemur að skipulagsmálum og samgöngumálum, mæta afgangi hjá stjórnmálamönnum því afraksturinn verður ekki sýnilegur í næstu kosningum. Einhver sagði að samgöngur og skipulag væru ekki pólitík heldur framtíðarsýn sem byggðist á gögnum og raunsæi, sem sagt skynsemi - en skynsemi er pólitísk stefna. Stundum er það svo að það raunsæi kallar á pólitískt hugrekki. Undirritun uppfærðs samgöngusáttmála er staðfesting þess að slíkt hugrekki finnst í íslenskum stjórnmálum.

Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Framsóknar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×