Fram kemur í frétt á vef lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að sunnudaginn ellefta ágúst hafi hjólreiðamaður fallið af reiðhjóli á hjólastíg í Traðarlandi í Reykjavík við Blesugróf þegar annar hjólreiðamaður hjólaði aftan á hjólið hans. Hjólreiðamaðurinn sem hjólað var á var fluttur á slysadeild.
Ók aftan í vinnuvél
Þá voru þrjú umferðarslys tilkynnt miðvikudaginn fjórtánda. Bifreið var ekið á gangandi vegfaranda á Vatnsendavegi í Kópavogi við Ögurhvarf. Ökumaðurinn ók rakleiðis af vettvangi en gaf sig síðar fram eftir að auglýst var eftir honum í fjölmiðlum. Vegfarandinn var fluttur á slysadeild.
Seinna sama dag var bifreið ekið austur Vesturlandsveg í Reykjavík, í Ártúnsbrekku, og aftan á vinnuvél sem ekið var sömu leið með tendruð gulblikkandi vinnuljós. Ökumaður bifreiðarinnar, sem grunaður er um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna, var fluttur á slysadeild. Þá nótt var bifreið einnig ekið á ljósastaur við Vesturlandsveg í Reykjavík og var ökumaðurinn fluttur á slysadeild.
Missti stjórn og hafnaði á vegriði
Fimmtudaginn fimmtánda ágúst var bifreið ekið snemma morguns austur Vesturlandsveg á Kjalarnesi og missti ökumaðurinn stjórn á henni. Við það valt bifreiðin út af akbrautinni og inn á miðeyju og hafnaði síðan á vegriði. Að sögn ökumanns var vatnspollur á veginum þar sem hann missti stjórnina en hann var fluttur á slysadeild í kjölfarið.
Föstudaginn sextánda ágúst keyrði bíll aftan á annan bíl á Sæbraut í Reykjavík. Bíllinn sem ekið var á var á sömu leið og var nýtekinn af stað eftir að grænt umferðarljós kviknaði á gatnamótum. Báðir ökumenn voru fluttir á slysadeild.
„Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli á mikilvægi þess að allir vegfarendur fari ávallt varlega í umferðinni og virði gildandi umferðarlög,“ segir á vef lögreglunnar.