Leikurinn var stórskemmtilegur. Chiefs leiddi lengstum en Hrafnarnir aldrei langt undan og þeir voru ótrúlega nærri því að jafna í lok leiksins.
Um leið og leiktíminn rann út þá greip Isaiah Likely boltann í endamarkinu og minnkaði muninn í eitt stig. Ravens gat þá jafnað með auðveldu aukastigi, og sett leikinn í framlengingu, eða reynt við tvö stig til að vinna leikinn.
Þeir ætluðu sér að reyna að við tvö stig og vinna leikinn. Allt eða ekkert.
The Ravens were THIS CLOSE to scoring the game-tying touchdown 👀#Kickoff2024 pic.twitter.com/08KjTVFHQZ
— NFL (@NFL) September 6, 2024
Á sama tíma voru dómararnir að skoða snertimark Likely. Við nánari skoðun kom í ljós að stóra táin á honum var utan vallar. Því var snertimarkið dæmt af og Chiefs vann. Þetta er svo sannarlega íþrótt millimetranna. Likely var svekktur eftir leik eins og sjá má.
🚨NEWS: #Ravens TE Isaiah Likely yelled “F*CK YOU B*TCH” to a #Chiefs fan while walking off the field after losing tonight
— MLFootball (@_MLFootball) September 6, 2024
(via @landonian87)
pic.twitter.com/PC8QKknlht
Patrick Mahomes, leikstjórnandi Chiefs, var frábær eins og alltaf. Stjarna leiksins var þó nýliðaútherji Chiefs, Xavier Worthy, sem skoraði tvö snertimörk í leiknum.
Lamar Jackson, leikstjórnandi Ravens, var frábær. Kastaði fyrir 273 jördum og hljóp eina 122 jarda þess utan. Það dugði þó ekki til.
Nýi hlaupari liðsins, Derrick Henry, fór rólega af stað þó svo hann hefði skorað í fyrstu sókn liðsins. Hann endaði með 46 hlaupajarda.
Deildin heldur áfram í kvöld er Philadelphia Eagles og Green Bay Packers mætast í Sao Paulo í Brasilíu. Á sunnudag verður Stöð 2 Sport svo með tvo leiki í beinni sem og að hægt verður að horfa á NFL Redzone þar sem allir leikir eru í beinni á sama stað.