Englandsmeistarar Liverpool og Íslandsmeistarar KR drógust saman í Evrópukeppni meistaraliða sumarið 1964 og voru bæði lið að taka þátt í keppninni í fyrsta sinn. Fyrri leikurinn fór fram á Laugardalsvelli og hefur nýlega fundist myndefni frá þeim leik.
Annars vegar upptaka úr úr safni feðganna Ósvalds og Vilhjálms Knudsen sem varðveitt er á Kvikmyndasafni Íslands. Það myndefni rataði til Liverpool og deildi félagið hluta þess á miðlum sínum í gær. Hins vegar er filma úr dánarbúi Ólafs H Torfasonar.
Vildu byrja leikinn upp á nýtt
Í liði KR í leiknum voru ungir menn að nafni Þórður Jónsson og Þorgeir Guðmundsson. Mikil spenna var fyrir leiknum og voru yfir tíu þúsund manns í stúkunni á ágústkvöldi í Reykjavík.

Þeir Þorgeir og Þórður fengu í gær að sjá myndefni frá leiknum í fyrsta sinn. Um er að ræða efni úr tveimur áttum og má sjá efnið í heild hér að neðan. Fyrra myndskeiðið er frá Kvikmyndasafni Íslands, úr safni feðganna Ósvaldar og Vilhjálms Knudsen.
Seinni upptakan er úr smiðju Ólafs H. Torfasonar sem var 16 ára gamall KR-ingur þegar hann tók upp efnið. Hann starfaði seinna meðal annars sem kvikmyndagagnrýnandi á Rás 2. Filman fannst í dánarbúi hans.
„Það er alveg frábært að sjá þetta. Ég tók eftir því sérstaklega - sem Þórður minntist á áðan - þegar var verið að skora og Bjarni Fel botnar ekki neitt í neinu,“ segir Þorgeir kátur.
„Þetta rifjar upp þetta fallega sumarkvöld. Ótrúlega fallegt, með tíu þúsund manns á vellinum. En þeir þurftu nú ekki að bíða lengi eftir fyrsta markinu, ég held það hafi liðið þrjár mínútur. Þeir voru fljótir að ná í myndefnið,“ segir Þórður.
„Já, bað ekki Svenni [Sveinn Jónsson, liðsfélagi þeirra í KR] dómarann að byrja leikinn upp á nýtt? Við vorum ekki klárir í þetta,“ segir Þorgeir.
Vissi meira um Púllarana en þeir sjálfir
Þrátt fyrir að fótboltaefni hafi ekki verið nærri eins aðgengilegt þá og það er í dag voru einhverjir í KR-liðinu sem þekktu vel til stjarna í Liverpool-liðinu á við Roger Hunt og Ian Callaghan. Það var þökk sé útvarpssendingum breska ríkisútvarpsins, BBC.

„Einhver sagði nú að einn af okkar eldri leikmönnum, Gunnar Guðmarsson, sem var nú búinn að fylgjast með ensku knattspyrnunni í 20 ár á þessum tíma, að hann vissi meira um Liverpool-mennina en þeir sjálfir,“ segir Þórður og hlær.
Stuðningmenn Liverpool fögnuðu marki Gunnars
Liverpool vann leikinn í Reykjavík 5-0 þann 17. ágúst 1964, en ekki var minni upplifun fyrir KR-inga að fara í ferð til Liverpoolborgar og spila á Anfield Road mánuði síðar. Þar með urðu þeir hluti fyrsta erlenda liðsins til að spila opinberan leik í borginni.

„Það var náttúrulega mikið ævintýri og margt nýtt fyrir okkur þar. Við spiluðum fyrir framan mikinn áhorfendafjölda, 30 þúsund líklega. Í flóðljósum, sem fæstir okkar höfðu prófað áður. Svo var hávaðinn, lætin og stemningin eftir því,“ segir Þórður.
Gunnar Felixson skoraði mark KR-inga í 6-1 tapi á Anfield þann 14. september 1964 og tóku ensku stuðningsmennirnir vel í mark hans.
„Ég man það þegar Gunni Fel skoraði, þá öskruðu þeir hærra og meira en þegar Púllararnir skoruðu. Þeir kölluðu þá: Reykjavík, Reykjavík!“ segir Þorgeir.

Mistóku Svein Jónsson fyrir Mick Jagger
Ekki skemmdi fyrir að KR-ingarnir deildu hóteli með einni frægustu hljómsveit heims.
„Það var líka ein hljómsveit á hótelinu með okkur, Rolling Stones. Við borðuðum morgunmat á borðinu við hliðina á þeim,“ segir Þorgeir.
„Það er annað ævintýri í þessu að vera með þá kappa með sér á hótelinu,“ bætir Þórður við.
„Þegar Svenni Jóns fór út á svalirnar í herberginu voru stelpurnar gargandi fyrir neðan. Þær héldu að hann væri Mick Jagger,“ segir Þorgeir.


Þeir félagar, Þorgeir og Þórður, ætla ásamt fleirum að halda upp á 60 ára áfangann um helgina. Haldið verður í ferð til Liverpool á föstudag.
Alls fara sjö úr KR-liðinu frá 1964 til Liverpool auk um 30 annarra KR-inga og Púllara.
Þar munu þeir sjá leik Liverpool og Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Fréttina má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.