Ibrahima Konaté hvað? Menn eru misvel dúðaðir á æfingum í íslenska haustinu.vísir/Vilhelm
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta æfði á hybrid grasvelli FH í Kaplakrika í dag, í undirbúningi fyrir næstu tvo leiki í Þjóðadeild UEFA.
Ísland vann Svartfjallaland í fyrsta leik keppninnar en tapaði svo fyrir Tyrklandi ytra. Liðið mætir svo fjórða liðinu í riðlinum, Wales, á Laugardalsvelli á föstudagskvöld og fær síðan Tyrkland í heimsókn á mánudagskvöld.
Íslenska liðið kom saman til æfinga í gær, og í dag var æft á nýlegum velli FH-inga sem er með blöndu af grasi og gervigrasi, líkt og til stendur að leggja á Laugardalsvelli.
Ljósmyndarinn Vilhelm Gunnarsson smellti af myndum sem sjá má í myndasyrpunni hér að neðan.
Buffin geta komið sér vel og sérstaklega ef að kólnar enn frekar þegar líður á vikuna. Kolbeinn Birgir Finnsson huldi andlit sitt til hálfs á æfingu í dag.VÍSIR/VILHELM
Gylfi Þór Sigurðsson var með á æfingu í dag, eftir að hafa glímt við bakmeiðsli og misst af síðustu tveimur leikjum Vals. Júlíus Magnússon, sem kallaður var inn sem 24. maður, var einnig mættur.
Nær allir leikmenn voru með bleika KSÍ-húfu á kollinum og buff um hálsinn, eða jafnvel yfir nær öllu andlitinu, til að verjast kuldanum. Búast má við enn meiri kulda þegar líður á vikuna og þegar flautað verður til leiks gegn Wales á föstudagskvöld er spáð um eins stigs hita.
Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson fara yfir málin, enn á ný sameinaðir á landsliðsæfingu.VÍSIR/VILHELMÅge Hareide brosir vonandi svona blítt eftir leikina við Wales og Tyrkland.VÍSIR/VILHELMVÍSIR/VILHELMHjörtur Hermannsson teygir vel á löppunum í upphitun.vísir/VilhelmHákon Rafn Valdimarsson æfir vanalega með enska úrvalsdeildarliðinu Brentford.VÍSIR/VILHELMMikilvægt að fara rólega af stað í upphitun.vísir/VilhelmJón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliðinu í báðum leikjum Íslands í síðasta mánuði, og skoraði gegn Svartfellingum á Laugardalsvelli.VÍSIR/VILHELMÍsland er með þrjá öfluga markmenn til taks.VÍSIR/VILHELMValgeir Lunddal Friðriksson með hendur upp í loft og spurning hvort rassinn fari svo niður í gólf.VÍSIR/VILHELMStefán Teitur Þórðarson kom frábærlega inn í íslenska liðið í leikjunum í september.VÍSIR/VILHELMMenn mættu í mismunandi skóbúnaði á æfinguna. Hybrid-grasið í Kaplakrika lítur vel út.VÍSIR/VILHELMVÍSIR/VILHELMArnór Ingvi Traustason glímdi við meiðsli í aðdraganda síðustu landsleikja en hefur verið mikilvægur hlekkur í íslenska liðinu.VÍSIR/VILHELMFyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson kaus eins og aðrir að vera með bleika húfu á hausnum á æfingu í dag.VÍSIR/VILHELMMikael Egill Ellertsson hefur byrjað fimm leiki fyrir Venezia í efstu deild Ítalíu það sem af er leiktíð.VÍSIR/VILHELMArnór Snær Guðmundsson er styrktarþjálfari landsliðsins. Á bakvið Hjört Hermannsson má sjá Júlíus Magnússon sem kallaður var inn í hópinn sem 24. maður.VÍSIR/VILHELMGylfi Þór Sigurðsson hefur glímt við bakmeiðsli og misst af síðustu leikjum Vals, en hann var á æfingunni í dag.VÍSIR/VILHELMÍslenska landsliðið mætir Wales á föstudag og svo Tyrklandi á mánudag, og þá þurfa menn að vera með augun opin.vísir/Vilhelm