Sverrir samdi við gríska stórliðið Panathinaikos í sumar eftir að hafa leikið lykilhlutverk í liði FC Midtjylland sem stóð uppi sem danskur meistari í maí. Sverrir, sem hefur þurft að glíma við sinn skerf af meiðslum upp á síðkastið, er nú aftur kominn á fullt skrið aftur og kann vel við sig í Aþenu en hann hafði áður verið á mála hjá PAOK í Grikklandi.
„Ég er gríðarlega ánægður með að vera kominn aftur til Grikklands. Líður eins og ég sé kominn aftur heim. Maður þekkir allt. Auðvitað var sumarið hjá mér skrítið að mörgu leiti. Ég náði ekki góðu og löngu undirbúningstímabili og var fljótlega farinn að spila fullt af leikjum sem gerði það að verkum að ég lenti í smá meiðslum. Hef náð að jafna mig af því núna og finnst ég vera á góðum stað. Vonandi get ég hjálpað landsliðinu eins mikið og ég get.“
Sverrir gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í hjarta varnarlínu Íslands og lýst honum vel á möguleika liðsins í fyrri leiknum gegn Wales á laugardalsvelli á föstudaginn kemur.
Wales er að taka sín fyrstu spor undir stjórn goðsagnarinnar Craig Bellamy og hefur byrjað Þjóðadeildina vel með jafntefli gegn Tyrklandi og Sigri gegn Svartfjallalandi.
„Við þurfum að taka okkar sénsa þegar að við fáum þá. Við vitum að þegar við erum þéttir til baka þá getum við varist á móti hvaða mótherja sem er. Það verður mjög mikilvægt að við tökum þá sénsa sem við fáum. Náum að skora úr þeim.“
Viðtalið við Sverri Inga í heild sinni má sjá hér fyrir neðan:
Leikur Íslands og Wales í Þjóðadeild UEFA á föstudaginn kemur verður sýndur í beinni útsendingu og í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Leikurinn hefst klukkan korter í sjö en upphitun hefst hálftíma fyrr á Stöð 2 Sport.