Aðeins tveimur sólarhringum eftir að Bjarni Benediktsson boðaði til fréttamannafundar í forsætisráðuneytinu á sunnudag og tilkynnti að stjórnarsamstarfinu væri lokið kom hann til Bessastaða í klukkan fjögur í dag til að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.

„Þetta er ekki spurning lengur um meirihluta eða minnihluta. Þetta er bara sú ríkisstjórn sem er tilbráðabirgða þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Meirihlutasamstarfi er lokið og ráðherrar eru beðnir um að sinna starfsskyldum sínum þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð,“ sagði Bjarni á tröppum Bessastaða á leið til fundar við Höllu Tómasdóttur forseta Íslands til að biðjast lausnar.
Ráðherrar Vinstri grænna segja af sér
Eftir að forsætisráðherra baðst formlega lausnar tilkynnti Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna á Facebook síðu sinni að fráfarandi stjórn hefði lokið erindi sínu. „Ráðherrar VG verði frá og með morgundeginum almennir þingmenn og muni nálgast þau brýnu mál sem nauðsynlegt væri að ljúka á Alþingi af ábyrgð og skyldurækni,“ sagði Svandís á Facebook.

Forsetinn tilkynnti að loknum rúmlega hálftíma fundi hennar og Bjarna að hún hefði fallist á þingrofstillögu forsætisráðherra frá í gær.
„Ég tók við þeirri tillögu en gaf mér jafnframt tíma og svigrúm til að gaumgæfa stöðuna. Ég hef nú rætt við formenn samstarfsflokkanna í ríkisstjórn og formenn annarra flokka og kannað hug þeirra til þingrofs og kosninga. Núna í morgun ræddi ég jafnframt við forseta Alþingis,“ sagði Halla.
Forsetinn segir heillavænlegast að kjósa
Heillavænlegast væri fyrir þing og þjóð að gengið verði til kosninga sem fari fram hinn 30. nóvember. Þingrofið verði tilkynnt á fundi Alþingis á morgun. Sömuleiðis hefði hún fallist á lausnarbeiðni forsætisráðherra fyrir hann og ráðuneyti hans.
„Í samræmi við stjórnskipunarvenju bað ég fráfarandi ríkisstjórn að sitja áfram sem starfsstjórn uns tekist hefur að mynda nýja ríkisstjórn,“ sagði forsetinn. Það væri frumskylda forseta Íslands að tryggja að í landinu væri starfhæf stjórn.
„Ríkisstjórn sem beðist hefur lausnar situr sem starfsstjórn til bráðabirgða. Í því felst að hún gegnir þeim störfum sem nauðsynleg eru við daglega stjórn landsins. Þingmenn halda umboði sínu til kjördags og geta því lokið mikilvægum málum sem fyrir þinginu liggja,“ las Halla Tómasdóttir upp úr yfirlýsingu sinni en gaf ekki kost á spurningum frá fréttamönnum.
Ný stjórn getur breytt fjárlögum

Bjarni leggur áherslu á að þingmenn haldi umboði sínu fram að kosningum og því geti þingið hvenær sem er komið saman. Hins vegar búist hann ekki við að þingið geri mikið meira en að afgreiða fjárlagafrumvarpið.
En er eitthvað sem segir að að þurfi endilega að afgreiða fjárlög. Árið er ekki liðið og kosið 30. nóvember. Getur ný ríkisstjórn ekki lagt fram fjárlagafrumvarp?
“Það er engin spurning í mínum huga að það er langskynsamlegast, ekki síst með tilliti til efnhagsmála að klára fjárlögin. Það er stutt síðan að það var breiður meirihluti fyrir því fjárlagafrumvarpi sem er á þinginu. Það kemur mér á óvart ef þeir sem stóðu að baki því fjárlagafrumvarpi væru allir komnir á nýja og aðra skoðun,” sagði Bjarni eftir fundinn með forseta.
Það aðhald sem væri boðað í frumvarpinu væri ein forsenda þess að Seðlabankinn hafi lækkað vexti og von væri á að vextir haldi áfram að lækka.
„Þannig að fara að skapa nýja óvissu um þetta væri óráð. Hins vegar, eftir kosningar, ný ríkisstjórnhún gæti ákveðið að gera breytingar á fjárlagafrumvarpi sem þá þegar liggur fyrir vegna ársins 2025. Það eru aðrir sálmar og ekki tímabært að fara út í þá,“ sagði Bjarni Benediktsson nýskipaður forsætisráðherra til bráðabirgða.