Á eftir Bjarna í pontu komu svo forkólfar hinna flokkanna á þingi en kosningabaráttan er nú hafin fyrir alvöru. Kjördagur verður þann 30. nóvember.
Einnig fjöllum við um kjaradeilu kennara sem hafa boðað verkföll í nokkrum skólum um mánaðarmót. Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs hjá SA segir að viðbótarhækkanir til kennarastéttarinnar geti raskað kjarasátt í landinu.
Einnig fáum við álit sérfræðings í flugbransanum á þeim tíðindum sem bárust frá Play í gær þar sem til stendur að draga saman seglin, í það minnsta þegar kemur að flugi yfir Atlantshafið.