Hægt var að kaupa meðlimakort til að fá afslátt að aðgangi að miðstöðinni á 6.800 krónur sem gilti í ár. Stakur aðgangur án þess að vera meðlimur fyrir eitt barn kostaði 2.800 krónur en 1.680 fyrir meðlimi. Hægt var að kaupa 10 skipta klippikort á 22 þúsund fyrir meðlimi en 13.800 fyrir þau sem voru meðlimir.
„Með sorg í hjarta viljum við tilkynna að Fjölskylduland mun varanlega loka dyrum sínum 29. október 2024, aðeins nokkrum dögum fyrir tveggja ára afmæli okkar. Þessi ákvörðun var tekin vegna þess að við stöndum frammi fyrir áskorunum sem við ráðum ekki við,“ segir í tilkynningu um málið á Facebook.

Fjallað var um rekstrarerfiðleika miðstöðvarinnar í sumar í kvöldfréttum Stöðvar 2. Eigendur sögðu miðstöðina afar mikilvæga til dæmis fjölskyldum af erlendum uppruna. Reksturinn hafi ekki gengið nægilega vel og það stefndi í lokun. Hún hefur nú verið staðfest.
„Við erum ævinlega þakklát hverjum og einum sem kom til okkar og lífgaði upp á okkar fallega Fjölskylduland. Ykkar stuðningur er eitthvað sem við munum alltaf muna eftir,“ segir jafnframt í tilkynningunni.