Dana Björg Guðmundsdóttir, leikmaður Volda í Noregi, er í hópnum og leikur sinn fyrsta landsleik í kvöld.
Sandra Erlingsdóttir, sem er nýbyrjuð að spila aftur eftir barnsburð, hvílir í leiknum í kvöld og þá er Elísa Elíasdóttir meidd.
Steinunn Björnsdóttir, leikmaður Fram, leikur sinn fimmtugasta landsleik í kvöld, á sínum heimavelli í Lambhagahöllinni.
Leikmannahópur Íslands gegn Póllandi
Markverðir:
- Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Aarhus Håndbold (62/2)
- Hafdís Renötudóttir, Valur (60/4)
Aðrir leikmenn:
- Alfa Brá Hagalín, Fram (2/0)
- Andrea Jakobsen, HSG Blomberg-Lippe (54/81)
- Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (26/5)
- Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (0/0)
- Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (54/73)
- Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (14/38)
- Eín Rósa Magnúsdóttir, Valur (21/45)
- Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Kristianstad HK (17/11)
- Katrín Anna Ásmundsdóttir, Grótta (2/1)
-
Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (19/19)
- Perla Rut Albertsdóttir, Selfoss (50/104)
- Rut Jónsdóttir, Haukar (115/244)
- Steinunn Björnsdóttir, Fram (49/67)
- Sunna Jónsdóttir, ÍBV (92/66)
- Thea Imani Sturludóttir, Valur (80/171)
- Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (139/401)
Leikur Íslands og Póllands hefst klukkan 20:15 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.