Skoðun

Rang­færslu­vaðall Hjartar J.

Ole Anton Bieltvedt skrifar

Hjörtur J. Guðmundsson, sem hefur skrifað hér tugi pistla gegn ESB, Evru og Evrópu, og virðist nánast vera á mála einhverra hægri-hægri afla í því, má auðvitað hafa sínar skoðanir, eða vera boðberi skoðana annarra, gegn greiðslu eða án, þar hefur hann auðvitað sama rétt og ég og við hin, til að boða þessar skoðanir, eftir föngum, og reyna að koma þeim á framfæri. Þetta er hans sjálfgefni réttur hér hjá okkur, en ekki alls staðar.

Hitt er svo annað mál, að hvorki hann né aðrir hafa rétt á að afmynda sannleika og staðreyndir með því að slíta mikilvæg atriði úr réttu samhengi - tímasambandi eða málefnalegu sambandi - eins og hann hefur stundað í stórum stíl og gerir aftur hér í dag, til að reyna að búa til þá mynd af stöðu mála, sannleikanum, sem honum þóknast eða er fenginn til. Ranga mynd eða falsmynd.

Í dag skrifar Hjörtur J. grein undir fyrirsögninni „Vilja miklu stærra bákn“, þar sem hann reynir að villa um fyrir lesendum með því að slíta staðreyndir úr réttu tímasambandi og tengja þær svo saman a la Hjörtur J. Auðvitað er hann þarna að draga upp afbakakaða eða falska mynd.

Hjörtur byggir sinn málflutning fyrir því, að Viðreisn vilja „stækka báknið“ á Íslandi - sem auðvitað er fjarstæða, Viðreisn er fremst í flokki þeirra stjórnmálafla, sem vilja með öllum skynsamlegum hætti, og innan velferðarrammans, minnka báknið - á einhverju mati, úttekt og stöðutöku mála frá 2009, 2011 og 2013.

Í dag renna lokavikur ársins 2024, 2025 er handan við hornið, eins og allir vita. Mikið eða flest af því, sem var, fyrir 15 árum er löngu breytt og á á flestan eða allan hátt ekki lengur við.

Þetta er þekkt aðferðafræði ýmissa afla, sérstaklega ákveðinna afla á hægri-hægri kantinum, að rjúfa tíma-, atburða- eða stöðu samhengi hluta, og raða svo þessum hlutum saman að eigin vild, til að breyta mynd og villa um fyrir mönnum, án þess að ljúga beint. Þessi málflutningur hlutasannleika er fyrir mér jafnvel verri en hrein ósannindi, því menn geta betur áttað og varð sig á þeim.

Sérfræðing í þessari aðferðafræði mætti telja nývalinn forseti BNA, Donald Trump, sem reyndar gengur enn lengra, því hann skirrist ekki við að ýkja eða ljúga beint.

Það kæmi mér ekki á óvart, að Hjörtur J. hafi glaðst nokkuð, fyllst gleði í hjarta sínu, þegar úrslit forsetakoaninganna í BNA lágu fyrir.

Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×