Skoðun

Hvernig getum við gert Ís­land að eftir­sóttum stað fyrir barna­fjöl­skyldur?

Birgitta Sigurðardóttir skrifar

Orlof á fullum launum, systkinaforgangur og leikskólapláss frá eins árs, jafnvægi milli vinnu og einkalífs og sjáanleg lækkun höfuðstóls í hverjum mánuði. Nei þetta er ekki útópía. Þetta er líf margra Íslendinga í Danmörku og öðrum nágrannalöndum.

Hvenær á svo að flytja heim?

Þeir sem eru búsettir erlendis þekkja eflaust spurninguna “jæja, hvenær á svo að flytja heim”? Þó baklandið kalli eru aðstæður barnafjölskyldna á Íslandi ekki nógu góðar í samanburði við þær sem við fjölskyldan njótum í Danmörku. Það var alltaf planið að flytja heim, en þegar betur er að gáð fylgir þessari ákvörðun fórnarkostnaður.

Ísland fremst í heimi þegar kemur að jafnréttismálum?

Við fjölskyldan nutum þess að ganga að leikskólaplássi að loknu fæðingarorlofi, eitthvað sem foreldrar á Íslandi ganga sannarlega ekki að vísu. Endalausir biðlistar hjá dagforeldrum og leikskólum valda óvissu og streitu fyrir fjölskyldur. Foreldrar standa frammi fyrir þeirri ákvörðun að ákveða hvort þeirra á að vera lengur frá vinnu. Oftar en ekki er tekjulægri aðilinn lengur heima. Með kynbundnum launamun er það yfirleitt konan sem þannig setur sinn vinnuferil á pásu með tilheyrandi tekjutapi og vítahringurinn heldur áfram. Getum við í alvöru sagt að Ísland sé fremst í heimi þegar kemur að jafnréttismálum?

Mönnunarvandi og verkföll

Óvissuþættirnir eru margir þegar kemur að leikskólamálum. Mönnunarvandi er daglegt brauð á mörgum leikskólum með tilheyrandi áhrifum á foreldra og vinnuveitendur. Ofan á það hefur nú staðið yfir verkfall í nokkrar vikur sem ekki sér fyrir endann á. Foreldrar þurfa að taka frí eða launalaust leyfi frá vinnu með tilheyrandi tekjutapi og auka álagi. Háar afborganir vegna hækkandi fasteignaverðs og vaxta valda því að margar fjölskyldur eiga erfitt með að ná endum saman. Margir íbúðareigendur þurfa að horfa á mánaðarlegar afborganir gufa upp í vexti og verðbætur og lítið sem ekkert fer inn á höfuðstólinn.

X-Hvað?

Nú þegar alþingiskosningar eru á næsta leiti verður spennandi að sjá hvaða breytingar stjórnmálaflokkar boða í málefnum barnafjölskyldna. Hvernig getum við gert Ísland að eftirsóttum stað fyrir barnafjölskyldur? Það er mikill fjöldi Íslendinga um allan heim sem veigrar sér við að koma heim vegna óboðlegs ástands og sér ekki hvernig dæmið á að ganga upp.

Megið endilega láta mig vita X-hvað ég á að kjósa.

Höfundur er tveggja barna móðir, búsett í Kaupmannahöfn.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×