„Ég hef alveg haft það á bak við eyrað í langan tíma að gefa út jólaplötu. Ég gaf út fyrsta jólalagið mitt 2018 og ætlaði fyrst að hafa það sem árlega hefð en svo tók bara annað við.
Í rauninni er ég að gera hana núna vegna þess að ég er að halda jólatónleika í Gamla Bíó í desember og er þess vegna að gera fullt af jólalögum. Það verða bara tekin jólalög á þessum tónleikum, flest í svona dansútgáfu, svo mér fannst þetta smá no brainer,“ segir Daði um tilkomu væntanlegrar jólaplötu.
Hér má heyra ábreiðu Daða Freys af laginu Komdu um jólin:
Stærsti Bandaríkjatúrinn til þessa
Daði hefur eytt góðum tíma í stúdíóinu að undanförnu eftir vægast sagt viðburðaríkt ár.
„Ég tók stærsta Bandaríkjatúr sem ég hef tekið, einn og hálfur mánuður af uppseldum tónleikum út um allt þar. Það var mjög gaman, svo tók ég líka tvær stórar tónlistarhátíðir þar í sumar.
Annars er ég mikið búinn að vera að einbeita mér að því að semja núna undanfarið fyrir næstu plötu. Þetta er í fyrsta skiptið þar sem ég er að leyfa mér að einbeita mér algjörlega að því bara að semja og ekki gera 100 hluti í einu. Næsta plata verður eitthvað.“

Söngur, dans og sviti í jólafjöri
Hann segist hlakka mikið til að koma heim í desember.
„Ég get ekki beðið eftir þessum tónleikum. Þegar ég hélt jólatónleika síðast 2018 var það með skemmtilegustu tónleikum sem ég hafði spilað, allir að syngja með og dansa og svitna. Ég ætla að taka sama konsept og síðast en bara gera þetta miklu meira alvöru. Betri framleiðsla, meiri ljós, stærri salur, meira gaman.“
Aðspurður hvort hann sé með einhverjar órjúfanlegar jólahefðir segir Daði:
„Ekkert sem er ekki bara partur af venjulegum íslenskum jólum held ég. Við hlustum á klukkurnar hringja inn jólin og þá knúsast allir og segja gleðileg jól. Annars er þetta aðallega bara kósí.“

Heljarinnar breyting í aðsigi
Það er heilmikið á döfinni hjá Daða.
„Ég ætla að klára plötuna fyrri part næsta árs og vonandi kemur hún út á næsta ári líka. Svo sé ég fyrir mér að taka einn Evróputúr auk þess að spila á festivölum um sumarið.
Annars er það stærsta í þessu að við erum að stefna á að flytja til Íslands aftur, í fyrsta skipti í tíu ár svo það verður heljarinnar breyting. Ég ætla að setja upp góða vinnuaðstöðu þar og halda áfram mínu striki í tónlistinni en prófa að gera það frá Íslandi,“ segir Daði Freyr fullur tilhlökkunar að lokum.
Hér má finna nánari upplýsingar um tónleikana.