Skoðun

Forðast að tala um megin­stefnuna

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Forystumenn Viðreisnar hafa greinilega áttað sig á þeim veruleika að áherzla á Evrópusambandið skilar ekki mörgum atkvæðum heldur þvert á móti. Það er engin tilviljun að fylgi flokksins hefur aukizt miðað við niðurstöður skoðanakannana að undanförnu samhliða því sem fulltrúar hans hafa nánast hætt að tala um sambandið. Rétt eins og gerðist í tilfelli Samfylkingarinnar fyrir um tveimur árum síðan.

Frambjóðendur Viðreisnar hafa þannig á undanförnum ljóslega forðast það nánast eins og heitan eldinn að minnast á Evrópusambandið og varla rætt það nema að frumkvæði annarra. Aðallega fjölmiðla. Fyrir ekki alls löngu og allt frá stofnun flokksins fram að því var varla minnzt til að mynda á efnahagsmál án þess að tengja það við sambandið og evruna sem átti að leysa svo gott sem allt. Ekki aðeins efnahagsmálin.

Hins vegar hefur stefna Viðreisnar vitanlega ekki breytzt enda er ekki einungis um að ræða meginstefnumál flokksins, sem önnur stefnumál hans taka meira eða minna mið af, heldur það mál sem hann var beinlínis stofnaður í kringum. Enda hafa forystumennirnir viðurkennt þegar gengið hefur verið á þá að Viðreisn muni gera inngöngu í Evrópusambandið að skilyrði í mögulegum stjórnarmyndunarviðræðum.

Ófrávíkjanlegt skilyrði

Til að mynda játaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, því aðspurð í Forystusætinu í Ríkisútvarpinu fyrir helgi að skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið yrði úrslitaatriði af hálfu flokksins í hugsanlegum stjórnarmyndunarviðræðum. Það tók þó fréttamanninn nokkrar tilraunir til þess að fá afdráttarlaust svar í þeim efnum eftir að hún hafði ítrekað reynt að koma sér undan því.

Hið sama gerði Guðbrandur Einarsson, oddviti Viðreisnar í Suðurkjördæmi, aðspurður á borgarafundi í Vestmannaeyjum á miðvikudaginn hvort málið yrði skilyrði fyrir þátttöku flokksins í ríkisstjórn. Staðfesti hann að sú yrði raunin. Sagði Guðbrandur að um yrði þannig að ræða ófrá­víkj­an­legt skil­yrði fyr­ir ríkisstjórnarsamstarfi af hálfu Viðreisnar að stefnt yrði á nýjan leik að því að Ísland gangi í Evrópusambandið.

Vert er að rifja upp að síðasta sumar gerði Maskína skoðanakönnun fyrir Evrópuhreyfinguna, sem Jón Steindór Valdimarsson, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, fer fyrir, þar sem meðal annars var spurt að því hvort fólk væri líklegt til þess að kjósa flokka hlynnta inngöngu í Evrópusambandið eða þjóðaratkvæði í þeim efnum. Sá hluti könnunarinnar var þó aldrei birtur. Væntanlega ollu niðurstöðurnar miklum vonbrigðum.

Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×